Sjálfvirkri bílaþvottastöð frá Löðri mun verða komið fyrir á gamla þvottaplaninu við Orkuna á Skagabraut 43 á Akranesi fyrir lok árs. Ljósm. sþ

Löður væntanlegt á Akranes fyrir árslok

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nýverið fékk Löður samþykkta umsókn fyrir sjálfvirka bílaþvottastöð á Akranesi. Stöðin verður staðsett við bensínafgreiðslu Orkunnar að Skagabraut 43 og fyrirhugað er að bætt verði við lóðina tveimur byggingarreitum fyrir bílaþvottastöðina auk geymsluskúrs. Bílaþvottastöðin Löður hefur verið starfandi síðan árið 2000. Alls eru 15 stöðvar á landinu; þrettán eru á höfuðborgarsvæðinu, ein á Akureyri og ein í Reykjanesbæ.\r\n\r\nÍ samtali við Skessuhorn segja forsvarsmenn fyrirtækisins að ekki sé komin dagsetning á opnun stöðvarinnar en vonast er til að geta opnað fyrir lok árs. ,,Jákvæðu fréttirnar eru þær að við erum komin með öll leyfi og vélin er komin til landsins. Við erum spennt að koma til ykkar upp á Akranes og bjóða upp á þjónustuna okkar þar. Með því að nýta sér bílaþvottastöðvar er bæði verið að nota minna vatn en á venjulegum þvottaplönum og það fer betur með umhverfið okkar. Það eru ekki allir sem átta sig á því að það eru olíu- og sandskiljur undir bílaþvottastöðvum sem fanga spiliefni svo þau fari ekki út í umhverfið. Við það að þvo bílinn heima fara öll efni sem eru notuð beint í fráveituna eða út í grunnvatnið,“ segir Elísabet Jónsdóttir hjá Löðri í samtali við Skessuhorn.",
  "innerBlocks": []
}
Löður væntanlegt á Akranes fyrir árslok - Skessuhorn