
Norðdalur á Steingrímsfjarðarheiði. Skjámynd úr vefmyndavél Vegagerðarinnar.
Slys á Steingrímsfjarðarheiði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Björgunarsveitir af vestanverðu landinu voru klukkan 14:18 í dag kallaðar til aðstoðar félögum sínum á Ströndum eftir slys þar sem maður hafði hrasað og fallið um þrjátíu metra niður gil við foss í Norðdal inn af Steingrímsfirði, skammt frá veginum þar sem ekið er upp á Steingrímsfjarðarheiði. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins, en samkvæmt upplýsingum af vettvangi fór þó betur en á horfðist í fyrstu. Maðurinn var engu að síður talsvert slasaður; m.a. brotinn á höndum og lemstraður, en þó ekki talinn í lífshættu. Aðstæður til björgunar voru erfiðar á vettvangi og úrhellisrigning á svæðinu. Björgunarsveitarmenn sigu niður í gilið, en annar hópur þeirra gekk upp gilið. Búið var um hinn slasaða á vettvangi. Aukin aðstoð björgunarsveita var síðan afturköllum um klukkan 16 eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar hafði sótt manninn og flutt á sjúkrahús í Reykjavík.",
"innerBlocks": []
}