Fréttir

true

Einar Margeir tekur þátt í Evrópumótinu í sundi

Í morgun hófst Evrópumeistaramót unglinga í sundi, en það fer fram í Rúmeníu. Alls taka 494 sundmenn frá 42 löndum þátt í mótinu. Fimm íslenskir keppendur eru mættir til leiks og á ÍA einn þeirra; Einar Margeir Ágústsson. Aðrir sundmenn frá Íslandi eru: Freyja Birkisdóttir Breiðabliki, Eva Margrét Falsdóttir ÍRB, Snorri Dagur Einarsson SH og…Lesa meira

true

Slakur leikur Skagamanna í Breiðholtinu

Skagamenn léku í gærkvöldi gegn Leikni og fór leikurinn fram í Breiðholtinu. Leikurinn var mikilvægur fyrr bæði lið í botnbaráttu Bestu deildar. Leiknismenn höfðu betur í leiknum og sigruðu 1:0. Leikurinn í heild sinni var ekki rismikill og úrslitin afleit fyrir Skagamenn. Það var lítið um opin færi í fyrri hálfleiknum og leikurinn í nokkru…Lesa meira

true

Eldur við verksmiðju Elkem í nótt

Laust fyrir klukkan tvö í nótt var allur mannskapur Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallaður út að verksmiðju Elkem Ísland á Grundartanga. Eldur var þá laus undir töppunarpalli, á stað þar sem töluvert af glussa er geymt undir. Starfsmenn glímdu við eldinn meðan beðið var aðstoðar slökkviliðs og höfðu tæmt úr fjörutíu slökkvitækjum og þannig náð…Lesa meira

true

Fjölskylduhátíð SÁÁ að Skógum um verslunarmannahelgina

Skógar 22, fjölskylduhátíð SÁÁ, verður haldin að Skógum um verslunarmannahelgina. Hátíðarsvæðið er við Skógaskóla í einstaklega fallegu og skjólsælu umhverfi. Fjölskylduhátíð SÁÁ er fyrir alla aldurshópa og verður fjölbreytt dagskrá í boði. Þar á meðal má nefna hljómsveit, skemmtiatriði, töframann, brekkusöng, paintball, hoppukastala, sápubolta, ratleik, jóga, sjálfsvinnu, listasmiðju og margt fleira. Stutt er í fjölbreytta…Lesa meira

true

Talað um hesta á ensku og þýsku

Fyrir síðustu jól kom út bókin Tölum um hesta eftir hjónin á Gufuá í Borgarhreppi, Sigríði Ævarsdóttur og Benedikt Guðna Líndal. Kom bókin út á íslensku eins og lög gera ráð fyrir, enda ætluð fyrir íslenskan jólabókamarkað. Hún hefur verið vinsæl meðal hestaunnenda. Íslenski hesturinn er hins vegar ekki síst þekktur víða um heim svo…Lesa meira

true

Náttúrubarnahátíð verður á Ströndum um næstu helgi

Það styttist óðum í Náttúrubarnahátíð á Ströndum, en hún verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi helgina 8.-10. júlí. Þetta er í sjötta skipti sem hátíðin er haldin, en hún er fjölskylduhátíð þar sem gestir; börn og fullorðnir, fá tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn á fjölbreyttum viðburðum sem einkennast af útivist, fróðleik…Lesa meira

true

Stærsta skemmtiferðaskip sumarsins er nú í Grundarfirði

Skemmtiferðaskipið Sky Princess skreið inn lygnan Grundarfjörðinn í morgun en framundan var dagsdvöl á Snæfellsnesi fyrir þá þrjúþúsund og fimmhundruð farþega sem voru um borð. Ferðalangarnir fengu frábærar aðstæður því logn og milt veður lék við þá. Einhverjir fóru í rútuferðir í kringum Snæfellsnes, aðrir í rútuferðir að Kirkjufellsfossi, fuglaskoðun með Láka Tours, Kayakferðir með…Lesa meira

true

Rebecca Cathrine er Dalamaður ársins

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal var vel heppnuð, enda margt í boði fyrir fólk á öllum aldri. Að sögn Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Dalabyggð, fór hátíðin sérlega vel fram og aðsókn fór fram úr björtustu vonum. Dalamaður ársins var valinn og féll sá titill í skaut Rebeccu Cathrine Kaad Ostenfeld, athafnakonu og dýravini í Hólum…Lesa meira

true

Kristín Eir og Þytur sköruðu framúr á fyrsta degi

Í gær hófst Landsmót hestamanna á Gaddastaðaflötum með forkeppni í barna- og unglingaflokki. Nú þegar er talsvert af gestum mætt í brekkurnar og mikil stemning í röðum hestaáhugafólks eftir fjögurra ára landsmótahlé. Eftir forkeppni í barnaflokki er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker frá Skáney langefst á hestinum Þyt með einkunnina 8,798. Sá árangur hefði dugað þeim…Lesa meira

true

Umferðarkönnun á Hringveginum við Borgarnes

Vegagerðin áformar að standa fyrir umferðarkönnun á Hringvegi, sunnan og norðan við Borgarnes og á Snæfellsvegi vestan við húsnæði Loftorku, frá deginum í dag 4. júlí nk. til ágúst loka. „Könnunin er gerð með rafrænu myndavélaeftirliti þar sem tryggt er að öll gögn sem unnið er með séu ópersónugreinanleg. Könnunin stendur yfir alla daga þetta…Lesa meira