Fréttir

true

Vestlenskt hestafólk mætt á Landsmót

Í gær hófst Landsmót hestamanna en það er haldið á Hellu á Rangárvöllum í ár. Landsmótið fer fram annað hvert ár en síðast var mótið í Reykjavík 2018 svo von er á að sjá nýjan hóp gæðinga og knapa í braut. Tvö ræktunarbú verða frá Vesturlandi og eru þau bæði af Snæfellsnesi; Hrísdalur og Berg.…Lesa meira

true

Sandara- og Rifsaragleði framundan

Helgina 7.-9. júlí fer Sandara- og Rifsaragleði fram í Snæfellsbæ. Dagskrá verður fyrir alla aldurshópa um helgina í Rifi, á Hellissandi og í Ólafsvík. Hátíðin hefst á uppistandi með Ara Eldjárn í Frystiklefanum í Rifi á fimmtudagskvöld en lýkur með sveitaballi í Félagsheimilinu Röst á Hellissandi á laugardagskvöldinu. Vegleg fjölskyldudagskrá verður á föstudegi og laugardegi.Lesa meira

true

Brekkusöngurinn sem fyrr fjölmennasta samkoma ársins

Áætlað er að um fimm þúsund gestir hafi mætt á Brekkusöng Írskra daga á Akranesi í gærkvöldi. Það var þétt setið í brekkunni við Þyrlupallinn og raunar náði gestaskarinn einnig yfir á svæðið ofan við knattspyrnuvöllinn. Aldrei hafa fleiri mætt á þennan viðburð. Það var Magnús Kjartan Eyjólfsson sem söng og stýrði fjöldasöngnum, en hann…Lesa meira

true

Tvö mörk í uppbótartíma færðu Skagakonum sigur

Það var magnaður uppbótartíminn þegar Skagakonur í meistaraflokki kvenna mættu stöllum sínum í Sindra frá Hornarfirði á Akranesvelli í gær. Þegar venjulegur leiktími var útrunnin leiddi Sindri 1:2, en á 91. mínútu jafnaði Ylfa Laxdal Unnarsdóttir metin eftir hornspyrnu og tveimur mínútum síðar á 93. mínútu átti Bryndís Rún Þórólfsdóttir frábæra sendingu fram völlinn á…Lesa meira

true

Sigur og tap hjá Víkingum

Víkingur Ólafsvík lék tvo leiki í síðustu viku í þriðju deildinni. Á miðvikudaginn gerður þeir góða ferð til Sandgerðis og sigruðu þar heimamenn í Reyni 4:3. Reynismenn fengu óskabyrjun þegar Anel Cranc varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 9. mínútu, en Andri Þór Sólbergsson náði að jafna metin fyrir Víkinga tíu mínútum síðar.…Lesa meira

true

Öndin fær far með skipi til Lýbíu

Á morgun heldur úr höfn á Akranesi eldra 279 tonna fiskveiðiskip sem selt hefur verið til lýbísks útgerðarfélags. Framundan er 18 daga sigling og stefnan tekin á Trípólí í Lýbíu. Ekki er óþekkt að eldri fiskiskip séu seld til suðlægra landa þar sem þau fá gjarnan framhaldslíf við veiðar eða til að gegna öðru hlutverki.…Lesa meira

true

Veitur útskýra tafir á nokkrum framkvæmdum á Akranesi

Suðurgata – Háholt – Skagabraut Líkt og bæjarbúar á Akranesi hafa orðið varir við þá hafa verið í gangi miklar framkvæmdir á vegum Veitna í bænum; á Suðurgötu, Háholti og Skagabraut. „Þær hafa ekki allar gengið samkvæmt áætlun en slíkt er alltaf viðbúið þegar vinna er skipulögð við lagnir sem grafnar eru í jörð og…Lesa meira

true

Þjóðleg ævintýri gerast á Úlfljótsvatni þessa helgi

10-12 ára skátar skemmta sér á skátamóti á Úlfljótsvatni um helgina. Þemað verður „Þjóðlegt“ og í umgjörðinni verður leitast við að draga fram þjóðlega arfinn í sögum og sögnum gamla tímans ásamt mismunandi handverki og öðrum viðfangsefnum. Skátarnir hafa verið að tálga, skylmast undir leiðsögn víkinga, steikja ástarpunga, kveikja eld, sigla bátum, vinna með ull,…Lesa meira

true

Systur verða á Hinseginhátíð Vesturlands í Snæfellsbæ

Laugardaginn 23. júlí koma Systur fram á Hinseginhátíð Vesturlands í Ólafsvík að lokinni gleðigöngu, en gangan hefst kl. 14:00. Félagið Hinsegin Vesturland mun halda aðra Hinseginhátíð Vesturlands í Snæfellsbæ helgina 22. – 24. júlí 2022. Félagið var stofnað í febrúar 2021 og hélt fyrstu Hinseginhátíð Vesturlands í Borgarnesi 9.-11. júlí á síðasta sumri. Talið er…Lesa meira

true

Stemningin eykst á Írskum dögum

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi er að rúlla af stað, en hún var formlega sett í gær. Þá var sitthvað í gangi; árleg grillveisla í boði Húsasmiðjunnar sem ungliðar í Golfklúbbnum Leyni sáu um. Tvær myndlistarsýningar voru opnaðar, en þær verða opnar alla hátíðardagana. Smári Hrafn Jónsson sýnir í gamla Iðnskólanum og Þorvaldur Arnar Guðmundsson…Lesa meira