Umferðarkönnun á Hringveginum við Borgarnes

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vegagerðin áformar að standa fyrir umferðarkönnun á Hringvegi, sunnan og norðan við Borgarnes og á Snæfellsvegi vestan við húsnæði Loftorku, frá deginum í dag 4. júlí nk. til ágúst loka. „Könnunin er gerð með rafrænu myndavélaeftirliti þar sem tryggt er að öll gögn sem unnið er með séu ópersónugreinanleg. Könnunin stendur yfir alla daga þetta tímabil, allan sólarhringinn. Úr könnuninni eiga að fást upplýsingar um leiðaval ökumanna, í kringum Borgarnes, og samsetningu umferðar í létt og þung ökutæki. Þessar upplýsingar munu nýtast við áætlanagerð fyrir hjáleið á Hringvegi við Borgarnes,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þá segir að engin töf eða truflun verði á umferð af þessum sökum og mun ökumönnum gert aðvart, með skiltum áður en þeir aka inn í það svæði, sem verður vaktað.",
  "innerBlocks": []
}
Umferðarkönnun á Hringveginum við Borgarnes - Skessuhorn