Fréttir

true

Hulda söng Vetrarljós

Tuttugasti og fjórði og jafnframt síðasti gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það var söngspíran og hjúkrunarfræðingurinn á sjúkrahúsinu á Akranesi, Hulda Gestsdóttir sem opnaði gluggann. Hulda flutti lagið Vetrarljós eftir Lárus Sighvatsson, fyrrverandi skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi. Hljómsveitarstjóri hússins, Birgir Þórisson útsetti lagið og textinn er einnig eftir Lárus.…Lesa meira

true

Katrín Valdís Söng Gabríelu

Tuttugasti og þriðji gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður á Þorláksmessu af henni Katrínu Valdísi Hjartardóttur sem söng hið mjög svo frambærilega jólalag, Söngur Gabríelu. Skagamenn kannast væntanlega margir við hana úr sýningunni Hunangsflugur og villikettir hjá Grundaskóla. Katrín Valdís hefur sungið frá því hún var pínulítill krakki. Mamma hennar segir reyndar…Lesa meira

true

Breytingar á staðgreiðslu um áramót

Í frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022 er tillaga að lagabreytingu um viðmið fyrir árlega uppfærslu skattleysis- og þrepamarka. Þessi breyting er síðasti áfangi kerfisbreytinga tekjuskatts einstaklinga sem kynntar voru árið 2019. Tillagan felur í sér að miðað verður við ársbreytingu vísitölu neysluverðs ásamt mati á þróun langtímaframleiðni. Miðað verður við 1,0%…Lesa meira

true

Fjölgar um tólf í einangrun á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að birta tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví á Vesturlandi. Miðað við fjölda greindra smita í gær á landsvísu þarf ekki að koma á óvart að fjölgar í hópnum, eða alls 12 manns sem verða því í einangrun fram yfir áramót. Nú eru 57 í einangrun…Lesa meira

true

Aflýstu helgihaldi um hátíðirnar

Í tilkynningu frá Garða- og Saurbæjarsókn kemur fram að í ljósi aðstæðna og nýrra samkomutakmarkana sem tekið hafa gildi var tekin sú ákvörðun að aflýsa öllu helgihaldi um jól og áramót. Fjórar kirkjur eru í sókninni sem nær yfir Hvalfjarðarsveit og Akranes. „Þetta er þungbært, en það sem við töldum skynsamlegast. Við viljum minna á…Lesa meira

true

Mesti fjöldi smita frá upphafi faraldursins

Í gær voru greind að minnsta kosti 518 ný smit Covid-19 á landinu. Það er langmesti fjöldi smita sem greinst hefur á einum degi frá upphafi veirunnar, en áður var hæsta talan 318 smit. Veiran er því í veldisvexti og viðbúið að smitum fjölgi enn frekar yfir jólin þrátt fyrir að hertar samkomutakmarkanir hafi tekið…Lesa meira

true

Veitingamönnum veitt undanþága til að hafa 50 gesti í sal í dag

Heilbrigðisráðherra heimilaði í gær undanþágu til handa veitingamönnum sem gildir eingöngu í dag, Þorláksmessu. Veitt er undanþága frá fjöldatakmörkun sem um getur í nýrri reglugerð um takmarkanir á samkomum 23. desember. Veitingastöðum er því heimilt að taka á móti 50 gestum í rými í dag í stað 20 líkt og kveðið er á um í…Lesa meira

true

Steypa rétt fyrir jólin

Það er frekar óvanalegt að sjá verktaka í steypuvinnu á aðventunni og hvað þá rétt fyrir jólin. En sú var samt raunin í Grundarfirði 21. desember þegar verktakarnir Þorkell Gunnar Þorkelsson og Jósef Ólafur Kjartansson voru að nýta tíðarfarið til steypu. Þá náðu þeir að steypa gangstéttina frá Gamla pósthúsinu að gatnamótum Sæbóls og Grundargötu…Lesa meira