
Gatnamót Sæbóls og Grundargötu. Ljósm. tfk.
Steypa rétt fyrir jólin
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það er frekar óvanalegt að sjá verktaka í steypuvinnu á aðventunni og hvað þá rétt fyrir jólin. En sú var samt raunin í Grundarfirði 21. desember þegar verktakarnir Þorkell Gunnar Þorkelsson og Jósef Ólafur Kjartansson voru að nýta tíðarfarið til steypu. Þá náðu þeir að steypa gangstéttina frá Gamla pósthúsinu að gatnamótum Sæbóls og Grundargötu en töluverðar framkvæmdir hafa staðið yfir þar með nýjum gangstéttum og götulýsingu. Þeir Gunni Múr og Jósef voru nokkuð brattir er ljósmyndara bar að garði og voru lítið að spá í jólaundirbúning.\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"49796,49797,49798\"]",
"innerBlocks": []
}