Veitingamönnum veitt undanþága til að hafa 50 gesti í sal í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heilbrigðisráðherra heimilaði í gær undanþágu til handa veitingamönnum sem gildir eingöngu í dag, Þorláksmessu. Veitt er undanþága frá fjöldatakmörkun sem um getur í nýrri reglugerð um takmarkanir á samkomum 23. desember. Veitingastöðum er því heimilt að taka á móti 50 gestum í rými í dag í stað 20 líkt og kveðið er á um í reglugerð. Að fjöldatakmörkunum slepptum verður skylt að viðhafa allar þær sóttvarnaráðstafanir sem kveðið er á um í reglugerðinni. Veitingastöðum ber því að loka á þeim tíma sem kveðið er á um í reglugerðinni, þ.e. kl. 21.00.\r\n\r\n„Þetta er gert til að gæta meðalhófs í ljósi þess hve skammur fyrirvari er á gildistöku reglugerðar um hertar sóttvarnaaðgerðir. Rekstraraðilar eru hvattir til þess að gæta áfram ýtrustu sóttvarnaráðstafana, svo sem með greiðu aðgengi að handspritti, tryggja grímunotkun og gæta að 1 metra nálægðarmörkunum milli ótengdra aðila,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.",
  "innerBlocks": []
}
Veitingamönnum veitt undanþága til að hafa 50 gesti í sal í dag - Skessuhorn