Fréttir

true

Gísli Höskuldsson látinn

Gísli Höskuldsson bóndi og hrossaræktandi frá Hofsstöðum og síðar Uppsölum í Hálsasveit lést 12. desember síðastliðinn. Gísli varð 95 ára og einum degi betur, en hann var fæddur 11. desember árið 1926 að Saurbæ í Villingaholtshreppi, einn fjögurra barna hjónanna Höskuldar Eyjólfssonar og Gíslínu Magnúsdóttur. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Kristfríður Björnsdóttir. Þau giftu sig 1963…Lesa meira

true

Mögulegt að uppfylltum skilyrðum að skipta búsetu barns

Breytingar á barnalögum um skipta búsetu barns, sem taka gildi í byrjun árs 2022, gera ráð fyrir að foreldrar geti samið um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Forsendur þess að semja um skipta búsetu barns eru þær að foreldrar geti komið sér saman um atriði er snúa að umönnun og uppeldi barnsins. Hægt verður…Lesa meira

true

Rithöfundaspjall á Bókasafni Akraness

Á Bókasafni Akraness hafa rithöfundar með rætur að rekja til Akraness kíkt í spjall síðastliðna daga og fleiri eru væntanlegir þegar líður á jólamánuðinn. Viðtölin eru birt á Facebook síðu Bókasafns Akraness en þetta er annað árið í röð sem þetta er gert á safninu í aðdraganda jóla. Fyrsti rithöfundurinn sem kíkti í spjall á…Lesa meira

true

Fækkar verulega í sóttkví á Vesturlandi

Samkvæmt tölum frá lögreglunni á Vesturlandi eru 34 í sóttkví í umdæminu og 27 í einangrun. Í gær voru 80 í sóttkví og 26 í einangrun. Flestir eru í sóttkví í Borgarnesi eða 17 en þeim fækkar þó verulega frá því í gær þegar þeir voru 63. Heldur fjölgar þó í einangrun í Borgarnesi frá…Lesa meira

true

Náttúran og friðsældin dregur að í fámennum samfélögum

Náttúran og friðsældin er það sem íbúar í fámennum, fjarlægum og jafnvel einangruðum samfélögum á Íslandi sækjast í en gæði grunnskóla, leikskóla og unglingastarf er það sem íbúar á jaðri höfuðborgarsvæðisins sækjast eftir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslunni „Sínum augum lítur hver á silfrið,“ eftir Vífil Karlsson hagfræðing hjá SSV og…Lesa meira

true

Hangikjet í aðdraganda jólablaðs

Áralöng hefð er fyrir því að starfsfólk Skessuhorns fái senda á skrifstofuna hangikjötsveislu á lokadegi við vinnslu Jólablaðsins. Í dag er lokahöndin lögð á 120 síðna Jólablað sem  mun renna úr prentvélunum seint í kvöld og verður dreift í fyrramálið. Veitingastaðurinn Galitó útbjó veisluna með tilheyrandi Ris a la mande.Lesa meira

true

Færðu Grunnskóla Snæfellsbæjar gjöf

Kvenfélag Hellissands færði á dögunum Grunnskóla Snæfellsbæjar hitapressu að gjöf. Gjöfin verður staðsett í textílmenntastofu skólans í Ólafsvík þar sem nemendur á mið- og unglingastigi geta notað hana í sinni vinnu. Nemendurnir eru nú þegar byrjaðir að nota pressuna og hefur hún reynst vel.Lesa meira

true

Halldór söng Yfir fannhvíta jörð

Fjórtándi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Halldór Hallgrímsson sjúkraflutningamaður og umsjónarmaður húsnæðis og tækja hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands söng lagið Yfir fannhvíta jörð. Lagið er eftir Ron Miller og textinn eftir Ólaf Gauk. Hér má hlusta á lagið.Lesa meira

true

Jólaútvarp GSNB í loftinu þessa vikuna

Jólaútvarp Grunnskóla Snæfellsbæjar hóf útsendingar í gærmorgun klukkan 9:00. Er þetta í sjötta sinn sem nemendur GSNB standa fyrir útvarpi með dyggri aðstoð kennara. Dagskráin er metnaðarfull og fjölbreytt eins og alltaf. Mikil vinna liggur á bak við svona útsendingar og hafa nemendur unnið að þáttagerð í nokkrar vikur. Þættirnir hjá yngri nemendum eru teknir…Lesa meira

true

Upptökur í kirkjunni

Þessa dagana er undirbúningur í fullum gangi fyrir athafnir og tónleika á aðventunni í Grundarfirði. Staðan virðist því miður vera sú sama og fyrir ári síðan þegar athafnir og viðburðir voru sendar út á samfélagsmiðlum svo fólk gæti notið þeirra heima. Eftir covidbylgjuna sem herjaði á Grundfirðinga síðustu vikur var tekin ákvörðun um að taka…Lesa meira