
Mikil friðsæld er í náttúrunni á Hornströndum.
Náttúran og friðsældin dregur að í fámennum samfélögum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Náttúran og friðsældin er það sem íbúar í fámennum, fjarlægum og jafnvel einangruðum samfélögum á Íslandi sækjast í en gæði grunnskóla, leikskóla og unglingastarf er það sem íbúar á jaðri höfuðborgarsvæðisins sækjast eftir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslunni „Sínum augum lítur hver á silfrið,“ eftir Vífil Karlsson hagfræðing hjá SSV og Sigurborgu Kr. Hannesdóttur. Skýrsluna má finna á vef SSV.\r\n\r\nRannsóknin gekk út á að skoða hvað það er sem fólk sækist eftir þegar það velur sér búsetu í ýmsum ólíkum samfélögum á landsbyggðinni. Skoðuð voru fámenn og einangruð samfélög og þau borin saman við fjölmenn samfélög á jaðri höfuðborgarsvæðisins, eins og Akranesi og fjölmennum samfélögum lengra frá höfuðborginni, eins og Ísafirði. Sé grunnþjónusta til staðar er það snyrtilegt umhverfi og falleg ásýnd sem hefur mikið vægi í búsetuvali fólks. „Það er því þannig að fólk sem býr á fámennum, fjarlægum og einangruðum stöðum býr þar fyrst og fremst vegna þess að fjölbreytt náttúra og friðsæld er mikils virði. Íbúar á jaðarsvæðum höfuðborgarsvæðisins láta sig þessa þætti minna varða og þess vegna verður ýmis þjónusta við börn hlutfallslega sterkust sem aðdráttarafl þeirra samfélaga í þessum landfræðilega samanburði,“ segir í skýrslunni.",
"innerBlocks": []
}