
Skjáskot úr myndbandi af spjalli Dúa Landmark við Ingu Ösp á Bókasfni Akraness.
Rithöfundaspjall á Bókasafni Akraness
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á Bókasafni Akraness hafa rithöfundar með rætur að rekja til Akraness kíkt í spjall síðastliðna daga og fleiri eru væntanlegir þegar líður á jólamánuðinn. Viðtölin eru birt á Facebook síðu Bókasafns Akraness en þetta er annað árið í röð sem þetta er gert á safninu í aðdraganda jóla. Fyrsti rithöfundurinn sem kíkti í spjall á þessu ári var Skagamaðurinn Dúi Landmark sem gaf nýverið út bókina Gengið til rjúpna. Magnús Þór Hafsteinsson var annar í röðinni en hann er þýðandi tveggja bóka fyrir þessi jól. Þá kom Kristján Már Gunnarsson rithöfundur barnabókarinnar Vala Víkingur og Epli Iðunnar í spjall á Bókasafn Akraness um liðna helgi. Ekki voru fleiri rithöfundar búnir að kíkja í spjall á safnið þegar Skessuhorn fór í prentun en hægt er að fylgjast með á Facebook síðu Bókasafns Akraness.",
"innerBlocks": []
}