{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þessa dagana er undirbúningur í fullum gangi fyrir athafnir og tónleika á aðventunni í Grundarfirði. Staðan virðist því miður vera sú sama og fyrir ári síðan þegar athafnir og viðburðir voru sendar út á samfélagsmiðlum svo fólk gæti notið þeirra heima. Eftir covidbylgjuna sem herjaði á Grundfirðinga síðustu vikur var tekin ákvörðun um að taka aftur upp með þessum hætti. Þegar fréttaritari leit við í Grundarfjarðarkirkju í vikunni sem leið mættu honum fallegir hljómar þegar upptökur voru í gangi fyrir eina aðventumessuna. Þó svo að ástandið sé orðið töluvert betra er þó aldrei of varlega farið.",
"innerBlocks": []
}