Fréttir

true

Sölvi og Declan verða áfram þjálfarar Skallagríms

Nýverið var gengið frá endurráðningu Sölva Gylfasonar sem þjálfara hjá meistaraflokki Skallagríms í fótbolta, en hann hefur þjálfað liðið frá árinu 2020. Declan Redmond verður áfram aðstoðarþjálfari liðsins. „Undanfarin tvö ár hefur verið markvisst unnið að því að gefa ungum leikmönnum uppöldum hjá Skallagrími tækifæri og því er að verða til ágætur kjarni ungra leikmanna.…Lesa meira

true

Inga María söng Jólin eru að koma

Inga María Hjartardóttir opnaði sjöunda glugga jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, í morgun. Inga sem hefur lokið námi frá frá hinum virta tónlistarháskóla Berkeley í Boston í Bandaríkjunum flutti lagið Jólin eru að koma sem hljómsveitin Í svörtum fötum gerði vinsælt á sínum tíma. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson. Hér má…Lesa meira

true

Loðna farin að veiðast norðan við land

Bjarni Ólafsson AK kom með fyrsta loðnufarminn á þessari vertíð inn til Neskaupstaðar skömmu fyrir hádegi í gær. Þar gleðjast menn yfir að vertíðin sé hafin en eru súrir yfir að þurfa að keyra fiskimjölsverksmiðjuna á olíu. Bjarni kom með alls 1600 tonn, sem fengust í átta hollum 40-50 mílur norður af Melrakkasléttu. Loðnuveiðiflotinn er…Lesa meira

true

Gísli Jónsson bauð lægst í bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum

Í síðustu viku voru opnuð tilboð í bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum fyrir árin 2022 til 2024. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á sléttar 70 milljónir króna. Gísli Stefán Jónsson ehf. á Akranesi var lægstbjóðandi með 79.980.000 krónur sem er um 14% yfir kostnaðaráætlun. Vaka hf. í Reykjavík bauð talsvert hærra, 187.673.000 krónur en það er um 168% yfir…Lesa meira

true

Endurnýjun A og B deilda HVE ganga vel

Framkvæmdir við endurnýjun A og B deilda Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi ganga vel. A deildin, lyflækningadeild, er mun lengra komin og er gert ráð fyrir að deildin verði tilbúin og afhent til notkunar um miðjan desember. Þá er reiknað með að B deild verði tilbúin í lok febrúar á næsta ári. Að sögn Halldórs B…Lesa meira

true

Bilun í Borgarneslínu II

Rafmagnstruflanir verða frá Ausu í Andakíl að Seleyri frá klukkan 17:00 í dag til kl 22:00 vegna bilunar á línu við hitaveitutanka. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

true

Andlát – Guðjón Ingvi Stefánsson fv. framkvæmdastjóri SSV

Guðjón Ingvi Stefánsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi er látinn, 82 ára að aldri. Guðjón var fæddur og uppalinn í Hveragerði. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1959 og verkfræðingur frá DTH í Kaupmannahöfn 1968. Eftir nám starfaði hann um tíma sem verkfræðingur hjá Hochtief við hafnargerð í Straumsvík og hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.…Lesa meira

true

Skallagrímur með ósigur gegn Fjölni

Skallagrímur gerði sér ferð í Grafarvoginn á föstudagskvöldið og lék gegn Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik. Jafnt var nánast á öllum tölum í fyrsta leikhluta en Skallagrímur var með fjögurra stiga forystu þegar honum lauk, 21:25. Fjölnismenn náðu að jafna um miðjan annan leikhluta og höfðu tveggja stiga forystu í hálfleik, 39:37. Fjölnismenn…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu botnbaráttuslagnum

Skallagrímur heimsótti lið Breiðabliks í Kópavoginn í gærkvöldi í Subway deild kvenna í körfuknattleik. Fyrir leikinn voru liðin í tveimur neðstu sætum deildarinnar, Breiðablik í sjöunda sæti með einn sigurleik og Skallagrímur í neðsta sæti án sigurs. Breiðablik var sterkari í upphafi leiks og leiddi 7:2 eftir þriggja mínútna leik en Skallagrímur náði að koma…Lesa meira

true

Tónar á ferð – ný söngbók eftir Valgerði Jónsdóttur

Út er komin bókin „Tónar á ferð“ – Söngbók eftir tónlistarkonuna Valgerði Jónsdóttur, Bæjarlistamann Akraness 2021. Í bókinni er að finna nótur að lögum sem Valgerður hefur samið á undanförnum árum og útsett fyrir barna- og ungmennakóra. Valgerður er einnig höfundur flestra af ljóðunum við lögin en einnig eru ljóð eftir Brynju Einarsdóttur, Guðmund Kristjánsson,…Lesa meira