Fréttir

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris suðvestanlands í fyrramálið

Á morgun, sunnudag er spáð suðaustan stormi suðvestanlands og er gul viðvörun í gildi. Reiknað með snörpum vindhviðum allt að 40-45 m/s frá um klukkan 9 í fyrramálið og fram undir kvöld á utanverðu Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á Snæfellsnesi. Um tíma verður einnig bálhvasst við Eyjafjöll. Á Hellisheiði og í Þrengslum verður blindbylur frá…Lesa meira

true

Mokveiða stórþorsk á Dohrnbankanum

,,Íslenskir togaraskipstjórar höfðu lengi rætt um að kanna þetta svæði en það gerðist ekkert í málinu fyrr en Ásgeir á Björgvini EA lét á það reyna nú í aflatregðunni á heimamiðum. Árangurinn var ævintýralegur og ævintýrið virðist bara halda áfram. Við erum búnir að fara tvo túra og aflinn er samtals um 310 tonn.“ Þetta…Lesa meira

true

Geir Harðar opnaði fjórða gluggann

Fjórði gluggi jóladagatals Skagamanna, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það var Skagamaðurinn Geir Harðarson sem flutti frumsamið lag, Jólasaga, en hann fékk hugmyndina að laginu fyrir nokkrum árum síðan. Geir ólst upp við rokk eins og KISS, Led Zeppelin og Utangarðsmenn og það blundar alltaf í honum rokkarinn eins og heyrist í…Lesa meira

true

Útvarp Óðal fer í loftið á mánudaginn

Árlegt jólaútvarp Nemendafélags Grunnskóla Borgarness, Útvarp Óðal, fer í loftið á mánudagsmorguninn næsta og standa útsendingar yfir í fimm daga frá klukkan 10-23 en lýkur klukkan 18.30 á föstudaginn. Fyrir marga er Útvarp Óðal órjúfanlegur hluti af jólahátíðinni og er dagskráin í ár ekki af verri endanum. „Fyrir marga er Útvarp Óðal fastur liður í…Lesa meira

true

Jólastemning á Erpsstöðum á sunnudaginn

„Við ætlum að vera með opið á sunnudaginn og vera með notalega stemningu. Nokkrir aðilar verða með bás hjá okkur og pláss fyrir fleiri að vera með. Verðum með tilboð á ýmsum vörum. Úrval af jólatrévöru frá Ástu Ósk, Skyrgámur mætir á svæðið klukkan 16 og heilsar upp á gesti,“ segir í tilkynningu frá Rjómabúinu…Lesa meira

true

Brynjar framlengir við Víking

Víkingur Ólafsvík skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Brynjar Vilhjálmsson 1. desember síðastliðinn. Brynjar er fæddur 2000 og uppalinn í Ólafsvík og getur leyst ýmsar stöður á vellinum. Hann lék 14 leiki fyrir Víking í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.Lesa meira

true

Hvammshlíðardagatal í fjórða skipti

Hversdagslegar, en samt sérstakar myndir í bland við fróðleik í kringum búskap og sveitalífið fyrr og nú – það hefur verið sérstæða Hvammshlíðardagatalsins síðan það kom út í fyrsta skipti haustið 2018. Það ár var tilgangurinn sá að fjármagna kaup á dráttarvél sem tókst vonum framar og blessaður Zetorinn 7245, árg. 1990, hefur komið fram…Lesa meira

true

Frístundahús og bílskúrar ekki lengur háð útgáfu byggingarleyfis

Ný reglugerð hefur tekið gildi sem ætlað er að straumlínulaga leyfisveitingaferlið við húsbyggingar. Reglugerðin kveður á um upptöku nýs kerfis við flokkun mannvirkja, sem hafa mun bein áhrif á eftirlit sveitarfélaga, meðferð umsókna og útgáfu leyfa vegna allrar mannvirkjagerðar. Nýja flokkunarkerfið þýðir að bygging einfaldari mannvirkja, svo sem frístundahúsa og bílskúra, mun ekki lengur vera…Lesa meira

true

Ekki bara skip sem koma við í Grundarfirði

Eins og fram hefur komið undanfarnar vikur hefur verið mikil umferð um Grundarfjarðarhöfn síðustu misserin og hefur hvert skipið á fætur öðru komið inn til löndunar. En það eru ekki bara skip sem spóka sig um í höfninni því að stærðarinnar selur hefur verið að svamla þarna um annað slagið líka. Í blíðviðrinu síðasta miðvikudag…Lesa meira

true

Leikmenn af Vesturlandi í æfingahópi KKÍ

Fram undan í desember eru æfingar yngri landsliða hjá Körfuknattleikssambandi Íslands. Þjálfarar landsliða U15, U16 og U18 drengja og stúlkna hafa valið um 30 manna æfingahópa sína og boðað leikmenn til æfinga í desember. Um er að ræða fyrstu æfingahópa liðanna fyrir næsta sumar en þá er stefnt að þátttöku í mótum fyrir öll lið…Lesa meira