
Fristundabyggð í Borgarfirði. Ljósm. mm.
Frístundahús og bílskúrar ekki lengur háð útgáfu byggingarleyfis
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ný reglugerð hefur tekið gildi sem ætlað er að straumlínulaga leyfisveitingaferlið við húsbyggingar. Reglugerðin kveður á um upptöku nýs kerfis við flokkun mannvirkja, sem hafa mun bein áhrif á eftirlit sveitarfélaga, meðferð umsókna og útgáfu leyfa vegna allrar mannvirkjagerðar. Nýja flokkunarkerfið þýðir að bygging einfaldari mannvirkja, svo sem frístundahúsa og bílskúra, mun ekki lengur vera háð útgáfu byggingarleyfis, heldur nægir að hafa svokallaða byggingarheimild sem mun draga verulega úr flækjustigi í slíkum framkvæmdum.\r\n\r\nBreytingin er í takti við áform um einföldun stjórnsýslu byggingamála sem fram koma í nýjum stjórnarsáttmála. Í tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kemur fram að framundan er frekari endurskoðun m.a. með hliðsjón af tillögum OECD sem gagnrýndi fyrra kerfi leyfisveitinga í mannvirkjagerð í samkeppnismati sínu á íslenskum byggingariðnaði á síðasta ári.\r\n\r\nÁkvæði sem varða palla, girðingar, skjólveggi og heita potta verða einfölduð. „Markmið með setningu reglugerðarinnar er að draga úr kostnaði við framkvæmdir og gera eftirlit með mannvirkjagerð skilvirkara og einfaldara með því að flokka mannvirki, m.a. eftir stærð, flækjustigi hönnunar og samfélagslegu mikilvægi. Þannig verður umsóknarferli byggingarleyfis og eftirlit með mannvirkjagerð sniðið að hverjum flokki fyrir sig á þann hátt að umfangslítil mannvirkjagerð verður mun einfaldari í framkvæmd sem ætti að leiða til lægri byggingarkostnaðar.“\r\n\r\n<strong>Helstu breytingar sem verða samfara gildistöku reglugerðarinnar eru eftirfarandi:</strong>\r\n\r\nMannvirki verða flokkuð eftir umfangi, eðli og samfélagslegu mikilvægi í þrjá umfangsflokka:\r\n\r\na. Í umfangsflokk 1 fellur einföld mannvirkjagerð, s.s. bílskúrar og frístundahús, sem undanþegin verður byggingarleyfi en háð byggingarheimild, sem er nýtt hugtak í byggingarreglugerð. Í þessum flokki verður t.a.m. hvorki skylt að skila séruppdráttum við umsókn né er gerð krafa um ábyrgðaryfirlýsingu iðnmeistara.\r\n\r\nb. Í umfangsflokk 2 fellur mannvirkjagerð sem felur í sér flestar almennar framkvæmdir, s.s. einbýlishús, fjölbýlishús og atvinnuhúsnæði og verður áfram háð byggingarleyfi.\r\n\r\nc. Í umfangsflokk 3 falla mjög flóknar eða umfangsmiklar framkvæmdir, sem hafa jafnvel mikið samfélagslegt mikilvægi, s.s. sjúkrahús, skólar og verslunarmiðstöðvar. Þessi mannvirkjagerð verður háð byggingarleyfi og er fyrirhugað að gera ítarlegri kröfur um eftirlit með hönnun þeirra en áður hefur verið.\r\n\r\nGerður verður skýr greinarmunur á tilkynningaskyldri mannvirkjagerð og mannvirkjagerð sem undanþegin er byggingarleyfi, en áður hafði verið fjallað um hvoru tveggja í sama ákvæði. Þá eru ákvæði sem varða palla, girðingar og skjólveggi einfölduð auk þess sem heitir pottar verða nú einungis tilkynningarskyldir, en voru áður byggingarleyfisskyldir.",
"innerBlocks": []
}