{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hversdagslegar, en samt sérstakar myndir í bland við fróðleik í kringum búskap og sveitalífið fyrr og nú – það hefur verið sérstæða Hvammshlíðardagatalsins síðan það kom út í fyrsta skipti haustið 2018. Það ár var tilgangurinn sá að fjármagna kaup á dráttarvél sem tókst vonum framar og blessaður Zetorinn 7245, árg. 1990, hefur komið fram í hverju dagatali síðan.\r\n\r\nAð þessu sinni er áherslan lögð sérstaklega á gamlar myndir af kindum og hrossum, margir um landið allt lögðu sitt af mörkum og sendu ljósmyndir, m. a. úr Borgarfirði og úr Dölunum. En líka Hvammshlíðarskepnur nútímans og einstaklega fallega náttúran þar í kring koma sterklega fram – ásamt fróðleik um sauðfjárliti, ull og margt fleira. Eins og síðast fylgir „viðauki“ með upplýsingar um gamla norræna tímatalið, íslenska merkisdaga og gamlar íslenskar mælieiningar.\r\n\r\nDagatalið er í stóru broti á 28 blaðsíðum og fæst hjá Kaupfélagi Borgfirðinga ásamt nokkrum stöðum á Norður- og Suðurlandi. Ekki síst er hægt að fá þetta sent í pósti hvert sem er – bæði innanlands og til útlanda. Karólína Elísabetardóttir, bóndi í Hvammshlíð er höfundur og útgefandi, það má panta hjá henni í síma 865 8107 eða í Facebook-skilaboðum. Dagatalið kostar 3.900 kr.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}