Fréttir

true

Lögreglan semur um sérfræðiráðgjöf í umhverfismálum

Nýverið var undirritaður samningur milli lögreglustjórans á Vesturlandi og fyrirtækis Stefáns Gíslasonar í Borgarnesi, Umhverfisráðgjafar Íslands, um sérfræðiráðgjöf vegna loftslagsstefnu, aðgerðaráætlunar og grænna skrefa í ríkisrekstri. Stefán mun samkvæmt samningnum vinna náið með umhverfisnefnd lögregluembættisins varðandi öll ofangreind atriði. „Um gríðarstórt verkefni er að ræða sem mun ná til nær allra rekstrarþátta embættisins. Það að…Lesa meira

true

Bergur Líndal opnar þriðja gluggann

Þriðja útsending á Skaginn syngur inn jólin er komin í loftið. Bergur Líndal syngur þriðja jólalagið að þessu sinni en hann er þekktur fyrir að vera mikill rokkari og hefur verið í mörgum þungarokkssveitum á síðustu árum. Bergur söng þrjú ár í röð á jólatónleikum á Gamla Kaupfélaginu á Þorláksmessu fyrir 6 til 7  árum…Lesa meira

true

Fyrirhuguð loðnubræðsla mun skerðast vegna skorts á rafmagni

Landsvirkjun hefur ákveðið að takmarka afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja í janúar, en verksmiðjurnar hafa samning við fyrirtækið um kaup á svokallaðri skerðanlegri orku, gegn hagstæðara verði. Nú mun í fyrsta skipti um árabil reyna á slíka skerðingu orkuafhendingar vegna orkuskorts. Þetta kemur sér sérlega illa í vetur í ljósi þess að útlit er fyrir…Lesa meira

true

Jólalestinni frestað í Stykkishólmi

Jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms sem stóð til að aka um bæinn á morgun, laugardaginn 4. desember, hefur verið frestað. Íbúar bæjarins þurfa þó ekki að örvænta því hún mun fara sína leið í næstu viku og verður það auglýst þegar nær dregur.Lesa meira

true

Lyflækningadeild HVE sett í sóttkví vegna omíkrons afbrigðis

Lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akranesi hefur nú verið sett í sóttkví eftir að þar greindist smit af omíkron afbrigði kórónuveirunnar. Sá sem fyrst greindist með afbrigðið hér á landi lá á lyflækningadeild HVE á Akranesi þegar hann smitaðist. Fram kom í fréttum í gær að sá hafði verið fullbólusettur og auk þess fengið örvunarskammt. Þórir Bergmundsson…Lesa meira

true

Vertu eldklár á þínu heimili!

Árlegt forvarnarátaki HMS og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór í gang 1. desember og mun átakið vara út desember. HMS hefur látið vinna viðtal við Sólrúnu Öldu Waldorff sem brenndist alvarlega þegar eldsvoði kom upp í íbúð í Mávahlíð árið 2019 og deilir hún lífsreynslu sinni með fólki til að efla umræðuna á sviði forvarna.…Lesa meira

true

Hey!rúlla ætlar að þróa margnota rúllupoka

Landsvirkjun og nýsköpunarfyrirtækið PlastGarðar ehf. hafa undirritað samning um aðstöðu fyrir verkefnið Hey!rúlla í skrifstofuhúsnæði Landsvirkjunar við Bjarnarflag í Mývatnssveit. Þetta verkefni PlastGarðars snýst um að vinna að þróun og hönnun á margnota heyrúllupokum, sem markmiðið er að skipt verði út fyrir einnota heyrúlluplast í landbúnaði. Þetta er því margnota lausn sem er bæði betri…Lesa meira

true

Borgarverk byggir upp fimm kílómetra kafla á Skógarströnd

Hjá Vegagerðinni var fyrr í haust opnað tilboð í endurnýjun 5,4 km vegarkafla á Snæfellsnesvegi (54) um Skógarströnd. Er þetta jafnframt með stærri útboðum í vegaframkvæmdum sem boðin hafa verið út á Vesturlandi í langan tíma. Eitt tilboð barst í verkið og var það frá Borgarverki í Borgarnesi. Hljóðaði það upp á 970 milljónir króna…Lesa meira

true

Mannamót í Stúkuhúsinu Görðum

Í kvöld, föstudaginn 3. desember klukkan 19, mun Guðmundur R Lúðvíksson, matreiðslu- og myndlistarmaður opna myndlistarsýningu ásamt því að flytja örtónleika í Stúkuhúsinu við Byggðasafnið í Görðum á Akranesi. Á sýningunni, sem nefnist „Mannamót“ verða um 40 pennateikningar. Við opnun sýningarinnar mun hann jafnframt flytja nokkur frumsamin lög með aðstoð góðra manna af Akranesi. Þar…Lesa meira

true

Jólatréð komið upp í Grundarfirði

Meðlimir í Lionsklúbbi Grundarfjarðar settu upp jólatré bæjarins á dögunum og er það tekið í nágrenni bæjarins. Tréð var svo skreytt eftir kúnstarinnar reglum og voru ljósin svo tendruð við lágstemmda athöfn í gær, 1. desember. Örfá börn voru á svæðinu en það aftraði þeim ekki frá að taka lagið og hlaupa nokkra hringi í…Lesa meira