
Í gærmorgun kom upp eldur í vélarrúmi Særifs SH 25 frá Rifi, þar sem það var við veiðar suðvestur af Látrabjargi. Skipverjar urðu fljótt varir við eldinn og brugðust mjög hratt og fumlaust við og náðu að slökkva eldinn. Fljótlega var Indriði Kristins BA kominn á vettvang og tók Særif í tog áleiðis til Patreksfjarðar,…Lesa meira








