Fréttir

true

Heiðdís Lind ráðin skólastjóri Leikskólans Sólvalla

Gengið hefur verið frá ráðningu nýs leikskólastjóra á Sólvelli í Grundarfirði. Við starfinu tekur Heiðdís Lind Kristinsdóttir sem er fædd og uppalin í Grundarfirði. Starfaði hún við Bíldudalsskóla um fimm ára skeið en hóf störf í Leikskólanum Sólvöllum í júní síðastliðnum, sem deildarstjóri. Heiðdís lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga 2014, B.Ed. gráðu í grunnskólakennslu yngri…Lesa meira

true

Gengið var til kosninga í Grundaskóla

Á miðvikudaginn í liðinni viku gengu kennarar og foreldrar barna í 10. bekk í Grundaskóla á Akranesi til kosninga eftir harða kosningabaráttu. Kosningarnar voru hluti af verkefni 10. bekkjar þar sem nemendur skiptu sér í hópa og stofnuðu stjórnmálaflokka. Krakkarnir settu upp veglegar stefnuskrár með þeim málum sem þeir vildu setja á oddinn. Þau vildu…Lesa meira

true

Mikil matarveisla framundan á Vesturlandi

Veisluhöld og matarhátíð Vesturlands er handan við hornið, en um er að ræða þrískipta viðburðadagskrá sem er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar og Áfangastaðaáætlunar „Matarauður Vesturlands“. Allan nóvembermánuð verður haldið úti viðburðadagatali; „Veisla á Vesturlandi“ þar sem matvælaframleiðendur eða veitingaaðilar í landshlutanum eru hvattir til að skrá sig og taka þátt. Til dæmis með því að…Lesa meira

true

Jól í skókassa til barna í Úkraínu

Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru…Lesa meira

true

„Metnaður og vilji að vera með góðan skóla“

Hilmar Már Arason tók við sem skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar af Magnúsi Þór Jónssyni haustið 2015 og hefur því gegnt starfinu í sex ár. Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni í Ólafsvík á dögunum og ákvað að heilsa upp á skólastjórann sem tók vel á móti honum. Í Grunnskóla Snæfellsbæjar eru nemendur 218 talsins á þremur starfsstöðvum…Lesa meira

true

Kraftmiklar kvenfélagskonur sóttu landsþing í Borgarnesi um helgina

Um 200 kvenfélagskonur komu saman í Borgarnesi þegar 39. landsþing Kvenfélagasambands Íslands var haldið á Hótel Borgarnesi um liðna helgi. Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1930 sem samstarfsvettvangur og málsvari kvenfélaganna í landinu. KÍ er fjölmennasta kvennahreyfingin á Íslandi sem starfar á landsvísu, með 17 héraðssambönd og 142 kvenfélög sem telja um 4.500 félaga. Það…Lesa meira

true

Lítið gerst varðandi bætur vegna sementsfoks

Þeir íbúar á Akranesi sem urðu fyrir tjóni þegar mikið magn sements slapp út í loftið og lagðist yfir nærliggjandi götur, hús og bíla, í byrjun árs eru margir orðnir langþreyttir á biðinni eftir upplýsingum um raunverulegt tjón af völdum sementsins og sanngjörnum bótum. Í byrjun þessa árs lýsti Sementsverksmiðjan yfir ábyrgð á því óhappi…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst tekur þátt í fjölþjóðlegu samstarfsverkefni um mjúka færni

Háskólinn á Bifröst tekur nú þátt í evrópsku háskólaverkefni um þróun rafrænna kennsluhátta. Erasmus+ áætlunin fjármagnar verkefnið sem unnið er í samstarfi fimm háskóla í Evrópu sem eru: ABC Academic Business Centrum í Slóvakíu, Háskólinn á Bifröst, Masaryk University í Tékklandi, Technische Universität Dresden í Þýskalandi og University of Applied Sciences Upper Austria í Austurríki.…Lesa meira

true

Enskar frímúrarastúkur styrkja nýsmíði björgunarskipa

Ensku frímúrarastúkurnar United Lodge of Prudence No 83 og Belgrave Chapter No 121 ákváðu nýverið að styrkja nýsmíðasjóð björgunarskipa Landsbjargar um 2000 pund. Var styrkur þessi veittur í tengslum við heimsókn íslenskra frímúrara á fundi áðurnefndra stúka. Slysavarnafélagið Landsbjörg er í viðamikilli framkvæmd með endurnýjun allra 13 björgunarskipa sinna á næstu tíu árum. Núverandi skip…Lesa meira

true

Óvelkominn maður innandyra

Laust eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags barst Lögreglunni á Vesturlandi tilkynning um óvelkominn mann innandyra í húsi á Akranesi. Þegar lögreglumenn mættu á staðinn heyrðu þeir grát. Fundu þeir ungling sem hafði læst sig inni á baðherbergi. Hafði unglingurinn rekist á ókunnugan mann inni á heimilinu og flúið inn á bað. Unglingurinn lýsti hinum ókunnuga mjög…Lesa meira