Fréttir

true

Skallagrímsmenn úr leik í Vís bikarkeppni karla

Skallagrímur er úr leik í Vís bikarkeppni karla í körfuknattleik en liðið tók á móti Tindastóli í 32-liða úrslitum Vís bikarsins í Borgarnesi í gærkvöldi. Tindastóll sem spilar í úrvalsdeild karla sýndi mikla yfirburði á parketinu gegn fyrstu deildar liði Skallagríms og reyndust gestirnir úr Skagafirði heimamönnum einfaldlega of stór biti þegar upp var staðið.…Lesa meira

true

Styrkir til íþrótta- og tómstundastarfs fyrir tekjulág heimili

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur samþykkt tillögu velferðar- og mannréttindaráðs um íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn á tekjulágum heimilum. Fyrir árslok skal greiða íþrótta- og tómstundastyrk með börnum fæddum á árunum 2006 til 2015 sem eru með lögheimili á tekjulágum heimilum á Akranesi. „Með tekjulágum heimilum er átt við heimili þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða…Lesa meira

true

Vara við neyslu á kræklingi úr Hvalfirði

Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi úr Hvalfirði því DSP þörungaeitur hefur greinst yfir viðmiðunarmörkum í honum. DSP þörungaeitur í kræklingi getur valdið kviðverkjum, niðurgangi, ógleði og uppköstum. Einkenni koma fram fljótlega eftir neyslu en líða hjá á nokkrum dögum. „Fulltrúi Matvælastofnunar safnaði kræklingi 22. september sl. við Fossá í Hvalfirði. Tilgangurinn var að kanna…Lesa meira

true

Áttatíu ára kaupstaðarafmæli á næsta ári

Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt erindi menningar- og safnanefndar þess efnis að haldið verði upp á 80 ára kaupstaðaafmæli Akraness á næsta ári. Bæjarráð samþykkti að veita fimm milljónum króna til verkefnisins í fjárhagsáætlun 2022. Fimm fulltrúar munu skipa afmælisnefnd og mun skipan hennar og erindisbréf liggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs. Á meðfylgjandi mynd er…Lesa meira

true

Jóhann Steinar er nýr formaður UMFÍ

Jóhann Steinar Ingimundarson er nýr formaður UMFÍ. Hann tekur við af Hauki Valtýssyni, sem gegnt hefur embætti formanns frá árinu 2015 og ákvað að gefa ekki kost á sér að nýju. Jóhann var sjálfkjörinn því enginn bauð sig fram í formannsembættið. Kosning stjórnar UMFÍ fór fram á sambandsþingi UMFÍ, sem fram fór á Húsavík á…Lesa meira

true

Skallagrímur og ÍA án sigurs eftir fjóra leiki

Það hefur ekki byrjað vel hjá Vesturlandsliðunum í 1. deild karla í körfuknattleik í vetur. Eftir fjóra leiki eru þau bæði án sigurs og sitja saman í botnsæti deildarinnar. Skallagrímsmenn fengu topplið Hauka í heimsókn í Fjósið í Borgarnesi og fengu skell á heimavelli. Skallarnir byrjuðu þó ágætlega, komust í 7:0 en Haukar jöfnuðu sig…Lesa meira

true

Hvasst verður við Breiðafjörð frá því síðdegis í dag

Norðaustan hvassviðri eða stormi, upp á 18 – 25 m/s, er spáð síðdegis í dag við Breiðafjörð þar sem gul viðvörun er nú í gildi. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 30 m/s, einkum á Barðaströnd. „Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og afmarkaðar samgöngutruflanir líklegar. Fólk er…Lesa meira

true

Smit í Brekkubæjarskóla og nemendur í sóttkví

Upp hefur komið Covid smit hjá nemanda í 2. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi og eru nemendur þar og starfsmannateymið komið í sóttkví. Það sama gildir um nemendur sem voru í frístund og einnig starfsmenn frístundar sem voru í vinnu á fimmtudag í liðinni viku. Nemandinn sem um ræðir var ekki í skólanum á föstudaginn…Lesa meira

true

Bleikt þema í skólastarfi á Vesturlandi í dag

Í tilefni af bleikum degi fór Blaðamaður Skessuhorns í heimsókn á alla leik- og grunnskóla á Akranesi í morgunsárið og kíkti á stemninguna. Þar var bleikt þema á öllum stöðum eins og við var að búast og allir ljúfir, léttir og kátir. Myndavélin var að sjálfsögðu á lofti og fylgir myndasyrpa með fréttinni á þessum…Lesa meira

true

Frystihúsið með skyrskálina Hrefnuna í bleikum október

Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Í ár leggur Krabbameinsfélagið áherslu á að vera til og mikilvægi þess að vera til staðar fyrir þær konur sem greinast með krabbamein, þegar tilveran breytist snögglega og við tekur tími sem getur reynst afar erfiður. Ísbúðin, kaffihúsið og sælkerastaðurinn Frystihúsið ætlar að…Lesa meira