default

Smit í Brekkubæjarskóla og nemendur í sóttkví

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Upp hefur komið Covid smit hjá nemanda í 2. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi og eru nemendur þar og starfsmannateymið komið í sóttkví. Það sama gildir um nemendur sem voru í frístund og einnig starfsmenn frístundar sem voru í vinnu á fimmtudag í liðinni viku. Nemandinn sem um ræðir var ekki í skólanum á föstudaginn en útsetningardagur smits var fimmtudaginn 14. október.\r\n\r\nSýnataka fer fram sjö dögum frá útsetningardegi en það er sá dagur sem börnin voru í samskiptum við hinn smitaða. Lok sóttkvíar er þegar niðurstaða úr sýnatöku liggur fyrir. Foreldrar barna í 2. bekk fengu seint í gærkvöldi sendan skráningarhlekk frá smitrakningarteymi um að barnið þeirra þyrfti að fara í sóttkví ef það hefði verið í skólanum þennan fimmtudag.\r\n\r\nElsa Lára Arnardóttir, aðstoðarskólastjóri Brekkubæjarskóla, segir í tilkynningu að þetta breiðist vonandi ekki meira út og biður foreldra að fara með börnin í sýnatöku ef þau eru með minnstu einkenni. Þá sendir hún nemendanum og öllum hlýja strauma. Þetta er annað smitið sem kemur upp í skólanum í haust en smit kom upp um miðjan september hjá einum nemenda í einum árganginum. Í kjölfarið voru tveir árgangar settir í sóttkví og starfsmannateymið sem tengt var þeim árgöngum.\r\n\r\nVetrarfrí er í Brekkubæjarskóla mánudag og þriðjudag en ljóst er að flestir úr 2. bekk þurfa að bíða aðeins lengur eftir að komast í skólann aftur.",
  "innerBlocks": []
}
Smit í Brekkubæjarskóla og nemendur í sóttkví - Skessuhorn