Fréttir

true

Smit í Brekkubæjarskóla og nemendur í sóttkví

Upp hefur komið Covid smit hjá nemanda í 2. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi og eru nemendur þar og starfsmannateymið komið í sóttkví. Það sama gildir um nemendur sem voru í frístund og einnig starfsmenn frístundar sem voru í vinnu á fimmtudag í liðinni viku. Nemandinn sem um ræðir var ekki í skólanum á föstudaginn…Lesa meira

true

Bleikt þema í skólastarfi á Vesturlandi í dag

Í tilefni af bleikum degi fór Blaðamaður Skessuhorns í heimsókn á alla leik- og grunnskóla á Akranesi í morgunsárið og kíkti á stemninguna. Þar var bleikt þema á öllum stöðum eins og við var að búast og allir ljúfir, léttir og kátir. Myndavélin var að sjálfsögðu á lofti og fylgir myndasyrpa með fréttinni á þessum…Lesa meira

true

Frystihúsið með skyrskálina Hrefnuna í bleikum október

Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Í ár leggur Krabbameinsfélagið áherslu á að vera til og mikilvægi þess að vera til staðar fyrir þær konur sem greinast með krabbamein, þegar tilveran breytist snögglega og við tekur tími sem getur reynst afar erfiður. Ísbúðin, kaffihúsið og sælkerastaðurinn Frystihúsið ætlar að…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Innra-Hólmskirkju að stöðvast vegna fjárskorts

Skessuhorn hefur af og til á liðnum vikum og misserum sagt frá umfangsmiklum framkvæmdum sem hófust í vor við Innra-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit, sem jafnframt er einn elsti kirkjustaður landsins. Viðhaldi núverandi kirkju hefur í árafjöld verið ábótavant vegna fjárskorts. Framkvæmdir eru nú vel á veg komnar en hafa þó stöðvast vegna fjárskorts. Forsaga málsins er…Lesa meira

true

Álfar og tröll í Grundarfirði

Lísa Ásgeirsdóttir í Grundarfirði á og rekur fyrirtækið Rútuferðir ehf ásamt manni sínum Hjalta Allani Sverrissyni. Rútuferðir hefur verið að þjónusta ferðamenn á svæðinu ásamt því að aka fyrir Strætó bs. og nú nýverið fyrir Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Í nóvember í fyrra opnaði Lísa svo verslunina Álfar og tröll í húsnæði fyrirtækisins. „Það var frekar rólegt…Lesa meira

true

Bikarstemning á bleikum degi

Skagamenn leika á morgun gegn Víkingi Reykjavík í úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Stemningin hefur verið að magnast upp síðustu daga í aðdraganda leiksins og nú er þetta að skella á. Að sögn Hlina Baldurssonar, skrifstofu- og verkefnastjóra hjá Knattspyrnufélagi ÍA, hafa nú selst nákvæmlega 4574 miðar á leikinn þegar Skessuhorn náði tali af honum…Lesa meira

true

Hæstiréttur staðfestir Landsréttardóm um Þóeyjartungur

Hæstiréttir kvað síðastliðinn miðvikudag upp dóm í þjóðlendumáli sem snertir afréttarlönd á Þóreyjartungum í ofanverðum Borgarfirði, en þær eru hluti af sameiginlegum afrétti Lundarreykjadals og Andakílshrepps. Með dómnum staðfesti meirihluti Hæstaréttar niðurstöðu Landsréttur 2019 sem sneri við bæði niðurstöðu Óbyggðanefndar ríkisins og dómi Héraðsdóms Vesturlands frá 2016. Samkvæmt dómi Hæstaréttar nú fæst það endanlega staðfest…Lesa meira

true

Býr til skart og lítil málverk

Laugardaginn 2. október hélt listakonan Michelle Bird sína mánaðarlegu sýningaröð á heimili sínu í Borgarnesi, sem hún hefur umturnað í listgallerí. Sýningarnar eru einungis einn dag hverju sinni og koma ólíkir listamenn úr öllum áttum á heimili Michelle til að sýna list sína í hinum ýmsu formum. Þennan laugardag var Lara Becker að sýna verkin…Lesa meira

true

Lifur í hillur kröfuharðasta markaðar í heimi

Um 40 starfsmenn vinna hjá Akraborg á Akranesi en fyrirtækið er með tvær starfsstöðvar eða verksmiðjur; eina á Akranesi en hin er staðsett í Ólafsvík. Fyrirtækið framleiðir mestmegnis niðursoðna þorsklifur en er einnig með aðrar vörutegundir eins og þorsklifrarpaté og niðursoðin svil. Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni á Snæfellsnesi á dögunum og kíkti við í…Lesa meira

true

Fengu skrúfu og öxulás í trollið

Það var óvæntur glaðningur sem kom upp með veiðarfærunum hjá Hring SH-153 í síðustu veiðiferð, en þá kom skrúfa upp með trollinu. Skrúfan var tekin um borð og skipverjar hófust handa við að gera við skemmdir sem urðu á trollpokanum. Ekki er vitað af hvaða bát skrúfan er en vitað er um tvær trillur sem…Lesa meira