
Stuðningsmenn ÍA verða á útopnu á morgun eftir 18 ára eyðimerkurgöngu. Ljósm. Aron Kristjánsson
Bikarstemning á bleikum degi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skagamenn leika á morgun gegn Víkingi Reykjavík í úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Stemningin hefur verið að magnast upp síðustu daga í aðdraganda leiksins og nú er þetta að skella á. Að sögn Hlina Baldurssonar, skrifstofu- og verkefnastjóra hjá Knattspyrnufélagi ÍA, hafa nú selst nákvæmlega 4574 miðar á leikinn þegar Skessuhorn náði tali af honum í morgun. Skagamenn hafa tryggt sér rúmlega tvö þúsund miða á leikinn og stuðningsmenn Víkings líklegir kaupendur þeirra miða sem eftir sitja.\r\n\r\nSíðustu daga hafa verið birt skemmtileg myndbönd á fésbókarsíðu knattspyrnufélags ÍA með gömlum hetjum og nýjum úr ÍA hvetja alla Skagamenn til að mæta á leikinn og styðja sitt lið.\r\n\r\nÞá ætla stuðningsmenn ÍA að hittast á morgun um hádegisbilið í upphitun fyrir leikinn í Minigarðinum sem er staðsettur í Skútuvogi í Reykjavík og eru skráðir í þann viðburð yfir 400 manns. Þar verður ýmislegt gert til að gíra mannskapinn upp, Bjössi Hauks fer yfir stuðningsmannasöngva, frí andlitsmálning verður fyrir börnin og þá verða stuðningsmannavörur seldar í Fanzoninu í Minigarðinum og einnig fyrir utan Laugardalsvöllinn fyrir leik.\r\n\r\nSamkvæmt vef ksi.is er mesti fjöldi á leik í úrslitum bikarkeppninnar síðustu 20 ár 5751 manns en það var árið 2015 þegar Valur og KR léku til úrslita. Því má búast við að metið gæti verið slegið á morgun því miðasala tekur oft kipp rétt fyrir leik. Engar takmarkanir eru á fjölda áhorfenda á leikinn en Laugardalsvöllur rúmar um tíu þúsund áhorfendur. Áhorfendur þurfa ekki að fara í hraðapróf vegna Covid-19 til að fara á leikinn.\r\n\r\nMiðar eru eingöngu seldir á tix.is. Miðaverð fyrir fullorðna er tvö þúsund krónur og fyrir 16 ára og yngri aðeins 500 krónur.\r\n\r\nLeikurinn fer fram eins og áður segir á Laugardalsvelli á morgun og hefst stundvíslega klukkan 15.\r\n\r\nÁFRAM ÍA!",
"innerBlocks": []
}