Smalahundurinn Moli slakar hér á í leit á Þóreyjartungum, í landi Sjálfseignarstofnunarinnar Oks í Borgarfirði. Ljósm. Sveinbjörn Eyjólfsson.

Hæstiréttur staðfestir Landsréttardóm um Þóeyjartungur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hæstiréttir kvað síðastliðinn miðvikudag upp dóm í þjóðlendumáli sem snertir afréttarlönd á Þóreyjartungum í ofanverðum Borgarfirði, en þær eru hluti af sameiginlegum afrétti Lundarreykjadals og Andakílshrepps. Með dómnum staðfesti meirihluti Hæstaréttar niðurstöðu Landsréttur 2019 sem sneri við bæði niðurstöðu Óbyggðanefndar ríkisins og dómi Héraðsdóms Vesturlands frá 2016. Samkvæmt dómi Hæstaréttar nú fæst það endanlega staðfest að krafa Óbyggðanefndar um að Þóreyjartungur séu þjóðlenda byggir ekki á haldbærum rökum. Dómurinn vísar efnislega í að svæðið hafi í upphafi verið hluti af landnámi Skallagríms Kveldúlfssonar og ríkið hafi því ekkert að gera með að læsa klónum í það og gera að þjóðlendu.\r\n\r\nÁgreiningurinn sneri meðal annars að því hvort Þóreyjartungur hefðu orðið hluti af jörðinni Hrísum sem gekk á milli Reykholtskirkju og sveitarfélags. Landið hefði heldur ekki orðið að beitarvæði þar sem tungurnar hefðu ekki verið notaðar sem samafnotaréttur fyrr en þær komust úr eigu Reykholtskirkju. Hæstiréttur féllst á kröfur sjálfseignarstofnunarinnar Oks, sem rak málið fyrir hönd héraðsbúa, meðal annars með tilliti til þess að óbyggðanefnd hafði fallist á að aðliggjandi landssvæðin Lundartunga og Oddstaðatunga hefðu verið numin í öndverðu og teldust bein eignarlönd. Dómurinn sagði Þóreyjartungur eiga margt sameiginlegt með þessum tveimur aðliggjandi landssvæðum með vísan til staðhátta, hæðar yfir sjávarmáli og gróðurfars. Þá segir í dómi Hæstaréttar: „Þrátt fyrir að hinar ýmsu gerðir Landnámu af landnámi á þessu svæði séu ekki að öllu leyti glöggar og samrýmanlegar verður sú ályktun dregin af þeim að allar Þóreyjartungur, sem liggja milli Flókadalsár í vestri og norðri og Syðri-Sandfellskvíslar í suðri, eins og þær hafa verið afmarkaðar í máli þessu, hafi í upphafi tilheyrt hinu víðfeðma landnámi Skalla-Gríms,“ [Kveldúlfssonar, innsk. blm.]",
  "innerBlocks": []
}
Hæstiréttur staðfestir Landsréttardóm um Þóeyjartungur - Skessuhorn