Fréttir

true

Staðan orðin erfið hjá Skagakonum

Staða kvennaliðs ÍA versnaði enn eftir 0:3 tap gegn Aftureldingu á Akranesvelli á laugardag. Aðstæður til knattspyrnuiðkunnar voru ekki upp á það besta á laugardaginn. Strekkingsvindur sem stóð á annað markið. Gestirnir úr Aftureldingu léku undan vindi í fyrri hálfleik. Eftir aðeins 40 sekúndna leik fengu þær aukaspyrnu utan vítateigs Skagakvenna. Ragna Guðrún Guðmundsdóttir tók…Lesa meira

true

Grunnur að fyrsta húsinu við nýja götu á Varmalandi

Í dag hófust jarðvegsskipti undir fyrsta íbúðarhúsið sem reist verður við götuna Birkihlíð á Varmalandi í Stafholtstungum. Það er Ásgeir Yngvi Ásgeirsson byggingameistari sem mun byggja einbýlishús á lóð númer 6. Deiliskipulag hefur verið til fyrir 17 húsa byggð við götuna allt frá 2005. Árið 2017 var skipulaginu breytt til að innan svæðisins rúmaðist einnig…Lesa meira

true

Listsýning Michelle Bird í Borgarnesi á morgun

Listakonan Michelle Bird hefur lokið við að gera upp vinnustofuna sína við Sæunnargötu 12 í Borgarnesi. Af því tilefni ætlar hún að setja þar upp sýningu sem verður opin næstu laugardaga. Fyrsta opnun verður á morgun, laugardaginn 4. september. Þar mun hún sýna nýjustu verkin sín. Auk þess verða sýnd verk eftir listakonuna Steinunni Steinars.…Lesa meira

true

Dragnótarbátar byrja nýtt kvótaár vel

Dragnótarbátar frá Snæfellsbæ byrjuðu nýtt kvótaár með stæl. Til dæmis fékk Guðmundur Jensson SH 28 tonn á fyrsta veiðidegi og þar af voru 24 tonn þorskur en auk þess skarkoli. Gunnar Bjarnason SH var með 17 tonn og þar af átta tonn af þorski og 2,5 tonn af ýsu. Ólafur Bjarnason SH var með 18…Lesa meira

true

Aldargömul skonnorta á ferð umhverfis landið

Skonnortan Wylde Swan lá í gær við ankeri nærri Ólafsvík. Vakti hún athygli íbúa enda hin myndarlegasta. Hér er á ferðinni hollenskt skólaskip, svokallað „Topsail Schooner“. Hún er 63 m löng, 7,5m breið og ná möstrin í 43 metra hæð. Er hún þannig sögð stærsta „top sailes scooner in the world,” eins og segir í…Lesa meira

true

Sveinn Arnar ráðinn organisti í Víðistaðakirkju

Sveinn Arnar Sæmundsson, sem hefur verið organisti og kórstjóri hjá Akraneskirkju í tæp 20 ár, hefur ákveðið að taka sér árs leyfi frá störfum og verið ráðinn organisti í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Frá þessu segir á vef Víðistaðakirkju en Sveinn Arnar tekur við af Helgu Þórdísi Guðmundsdóttur sem starfað hefur sem organisti síðastliðin níu ár…Lesa meira

true

Viðhorfskönnun um hönnun Langasandssvæðisins lýkur á sunnudaginn

Akraneskaupstaður ákvað árið 2020 að efna til hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi í samstarfi við FÍLA, Félag íslenskra landslagsarkitekta. Markmiðið með samkeppninni var að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnarsvæðið. Svæðið sem um ræðir nær frá Innnesvegi til norðausturs, Langasandi og Leyni…Lesa meira

true

Leggja Héraðsnefnd niður

Á fundi byggðarráðs Dalabyggðar 26. ágúst síðastliðinn var samþykkt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að leggja Héraðsnefnd Dalasýslu niður. „Héraðsnefnd Dalasýslu hafði verkefni á meðan fleiri en eitt sveitarfélag var í sýslunni. Eftir að sveitarfélögin sem áttu aðild að Héraðsnefndinni sameinuðust í Dalabyggð hefur hún ekkert hlutverk lengur og hefur Dalabyggð sinnt verkefnum sem…Lesa meira

true

Skýrsla um samstarf safna á Vesturlandi

Út er komin skýrsla um aukið samstarf safna á Vesturlandi. Skýrslan er unnin af ráðgjafafyrirtækinu Creatrix undir stjórn Signýjar Óskarsdóttur og Emmu Bjargar Eyjólfsdóttur, en hún var unnin í samstarfi við Sigurstein Sigurðsson menningarfulltrúa hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. SSV var falið af mennta- menningarmálaráðuneytinu að kanna fýsileika á auknu samstarfi eða sameiningu safna á…Lesa meira

true

Endurbætur á lóð Lýsuhólsskóla

Miklar endurbætur hafa nú átt sér stað á lóð Lýsuhólsskóla á Snæfellsnesi og lauk framkvæmdum við þær í síðustu viku. Á vef Snæfellsbæjar segir að svæðið hafi verið snyrt, lagðar gúmmíhellur og plastgrindur í kringum leiktæki, sem voru jafnframt lagfærð og nýjum leiktækjum bætt við. Girðing hefur einnig verið sett upp umhverfis lóð skólans og…Lesa meira