Fréttir

true

Lífsgæði aukast með styttingu vinnutíma

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út nýja skýrslu í tengslum við tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma hjá ríkinu. Þar er að finna niðurstöður rýnihópa og viðtala við starfsmenn og maka þeirra. Helstu niðurstöður eru þær að þátttakendur upplifðu meiri lífsgæði og leið betur bæði í vinnunni og heima fyrir eftir tólf mánuði af styttingu vinnuvikunnar borið saman við…Lesa meira

true

Valdís flaug áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, flaug áfram á annað stig úrtökumótanna fyrir LPGA-mótaröðina í golfi, þá sterkustu í heimi. Valdís lauk leik á fyrsta stigi úrtökumótanna í Kaliforníu um helgina. Hún endaði á einu höggi undir pari samanlagt á fjórum hringum og endaði í 21. sæti ásamt fleiri kylfingum. Alls komust 95 kylfingar…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur Kára

Kári vann fyrsta útisigur sinn í 2. deild karla í knattspyrnu þegar liðið lagði Dalvík/Reyni með þremur mörkum gegn einu á á sunnudag. Andri Júlíusson skoraði fyrsta mark Kára úr vítaspyrnu á 24. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Hann bætti öðru marki við á 55 mínútu en heimamenn fengu síðan vítaspyrnu á 73.…Lesa meira

true

Sérstök lán til nýbygginga á landsbyggðinni

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í morgun breytingar á reglugerð sem gerir það að verkum að sveitarfélög, einstaklingar og óhagnaðardrifin félög á landsbyggðinni muni fljótlega geta tekið lán hjá Íbúðalánasjóði til húsnæðisuppbyggingar á stöðum þar sem önnur fjármögnun er ekki í boði. Undirritunin fór fram á Drangsnesi við Steingrímsfjörð, en Vestfirðir eru einmitt…Lesa meira

true

Kaflaskipt gegn toppliðinu

Skagakonur máttu sætta sig við 0-4 tap gegn toppliði Þróttar þegar liðin mættust í 15. umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu á föstudag. Leikið var á Akranesi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Gestirnir voru meira með boltann og sóttu nokkuð stíft en Skagakonur vörðust afar vel, héldu góðu skipulagi  og voru þéttar til…Lesa meira

true

Nýgengnir laxar að veiðast í Norðurá

„Jú, vatnið jókst aðeins í Norðurá rétt áður en við komum til veiða og það hafi sitt að segja í hollinu. Við veiddum yfir tuttugu laxa og það var að ganga nýr fiskur í ána,“ sagði Birgir Örn Pálmason sem var að koma úr Norðurá í Borgarfirði. „Veiðin gekk vel hjá okkur og við fengum…Lesa meira

true

Víkingur skellti toppliðinu

Víkingur Ó. vann öruggan sigur á toppliði Fjölnis, 4-1, þegar liðin mættust í Inkasso deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í Ólafsvík. Snemma leiks dró til tíðinda þegar Ólafsvíkingar fengu vítaspyrnu eftir að brotið var á Guðmundi Magnússyni. Harley Willard fór á punktinn, skoraði örugglega með skoti í vinstra hornið og kom Víkingi…Lesa meira

true

Skagamenn felldu ÍBV

ÍA sigraði ÍBV, 2-1, í 18. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesvelli á laugardaginn. Var þetta fyrsti sigur Skagaliðsins síðan 6. júlí og Skagamenn því aftur komnir á sigurbraut. Eyjamenn eru hins vegar fallnir. Eyjamenn fengu dauðafæri í upphafi leiks þegar Benjamin Prah lagði boltann á Gary Martin sem skaut beint…Lesa meira

true

Þjóðræknifélag Íslendinga áttatíu ára

Þjóðræknisfélag Íslendinga fagnar 80 ára afmæli sínu í ár. Félagið var stofnað 1. desember 1939 en markmið þess er að efla samskipti og samvinnu Íslendinga og Vestur-Íslendinga með ýmsum hætti. Afmælisárinu var fagnað á Þjóðræknisþingi sem nýverið fór fram. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sótti þingið en hún var heiðursgestur á Íslendingadögunum í Mountain í…Lesa meira

true

Stykkishólmur er sífellt að verða sterkari ferðamannasegull

Nýverið komu út átta skýrslur með niðurstöðum ferðavenjukönnunar sem unnin var á síðasta ári meðal erlendra gesta á jafn mörgum áfangastöðum víðsvegar um landið. Í könnuninni var aflað upplýsinga um ýmsa einkennandi þætti ferðamanna á rannsóknarsvæðunum, svo sem búsetuland, ferðamáta, gistimáta og dvalarlengd, auk þess sem ástæða heimsóknar og útgjaldamynstur þeirra var skoðað. Ferðamálastofa fól…Lesa meira