Fréttir

true

Brennugjörningur við Norska húsið á morgun

Brennuvargar er félag leirlistarmanna sem sérhæfir sig í brennslu keramiks með lifandi eldi. Á morgun, laugardaginn 25. júlí, ætlar félagið að verða með Skeljahátíð, brennugjörning við Norska húsið í Stykkishólmi frá klukkan 13:00 – 16:00. „Á gjörningnum verður brennt í Rakúofni sem kynntur er með gasi og gefst gestum kostur á að sjá með eigin…Lesa meira

true

Blað brotið í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland

Vefurinn upplifdu.is opnaður Markaðsstofur landshlutanna ýta í gær úr vör langstærsta samstarfsverkefni sem samtökin hafa ráðist í. „Verkefnið er mikilvægur hlekkur í enduruppbyggingu ferðaþjónustunnar í kjölfar heimsfaraldurs,“ segir í tilkynningu. Samstarfsverkefnið miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem…Lesa meira

true

Fíkniefnaframleiðsla stöðvuð

Lögregla gerði húsleit í húsi í Borgarfirði morgun einn í liðinni viku vegna gruns um framleiðslu fíkniefna. Að sögn lögreglu fundust þar ýmis merki um virka ræktun í húsinu, svo sem afskorningar af kannabisplöntum, spennar fyrir ræktunarlampa, þurrktjöld, áburðarbrúsar, tölvur og ýmislegt fleira. Allt var haldlagt í þágu rannsóknar, að sögn lögreglu. Þrír menn eru…Lesa meira

true

Atvinnuleysi í júní var svipað og undanfarin ár

Hlutfall atvinnulausra í júnímánuði var 3,5% samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Mælt atvinnuleysi lækkaði frá því í maí um 6,4 prósentustig, þegar það mældist 9,9%. „Ef mælingar á atvinnuleysi í júní 2020 eru bornar saman við mælingar í júní frá fyrri árum má sjá að atvinnuleysi nú er svipuð því sem var fyrir ári síðan…Lesa meira

true

Umferðartafir fyrir ofan Borgarnes

Töluverðar umferðartafir eru nú á þjóðvegi 1 fyrir ofan Borgarnes, þar sem hann liggur um gamla Borgarhrepp. Framkvæmdir standa yfir veginum, þar sem unnið er við yfirlögn. Mikil umferð er á þjóðveginum í báðar áttir, fólk á leið í frí með ferðavagna og aðrir vegfarendur. Umferð um framkvæmdasvæðið er stýrt með umferðarljósum.Lesa meira

true

Collective var valin besta heimildamyndin á IceDoc

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Iceland Documentary Film Festival var haldin á Akranesi 15.-19. júlí. Þetta var í annað sinn sem hátíðin er haldin en til hennar var stofnað af þeim Ingibjörgu Halldórsdóttur, Heiðari Mar Björnssyni og Halli Erni Árnasyni. Boðið var upp á fjöldan allan af fjölbreyttum heimildamyndum en auk þess voru kvöldvökur, barnadagskrá, tónlistardagskrá, jóga og…Lesa meira

true

Fastir í á

Franskir ferðamenn lentu í vanda þegar þeir festu bíl sinn í á á Arnarvatnsvegi síðdegis á sunnudag. Kallað var eftir aðstoð frá Björgunarsveitinni Oki til að komast til fólksins. Mikilla tungumálaörðugleika gætti, að sögn lögreglu, og þurfti aðstoð túlks til að halda uppi samskiptum við fólkið. Fólkinu varð ekki meint af og lítið tjón varð…Lesa meira

true

Tvö smit greindust við áhafnaskipti flutningaskips

Tveir skipverjar flutningaskipsins Seaboss, sem lagðist að bryggju á Grundartanga í gær hafa greinst með Covid-19. Dvelja þeir nú í sóttvarnarhúsinu við Rauðarárstíg í Reykjavík. Þrír skipsfélagar þeirra dvelja þar einnig, vegna nálægðar við hina smituðu. Morgunblaðið greindi frá. Skipverjar á Seaboss fóru í skimun við kórónaveirunni vegna áhafnaskipta eftir að skipið kom hingað til…Lesa meira

true

Fjallað um fremsta afreksíþróttafólkið

Umfjöllun um íslenskt afreksíþróttafólk má nú sjá á undirsíðum vefsíðu Íþróttasambands Íslands, isi.is. „Síðurnar eru hugsaðar sem heimild um okkar besta íþróttafólk þessa stundina, þar sem hægt er að sjá á einum stað umfjöllun um viðkomandi íþróttamann eða íþróttakonu, myndir og áhugaverðar upplýsingar. Verkefnið er lifandi og hugmyndin er að bæta reglulega við íþróttafólki sem…Lesa meira

true

Dramatískur sigur Kára

Káramenn unnu dramatískan 1-0 sigur á Dalvík/Reyni, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Akraneshöllinni. Áhorfendur þurftu að bíða lengi þar til fyrsta og eina mark leiksins leit dagsins ljós, því það kom ekki fyrr en á 85. mínútu. Káramenn sóttu hratt upp völlinn og sóknin endaði með…Lesa meira