Fréttir

true

Ólafsvíkingar burstaðir

Víkingur Ó. lék sinn fyrsta leik undir stjórn Guðjóns Þórarsonar þegar liðið mætti Leikni R. í 1. deild karla í knattspyrnu. Leikið var á Leiknisvelli í gærkvöldi. Ólafsvíkingar fengu enga draumabyrjun undir stjórn nýs þjálfara. Þvert á móti voru það heimamenn sem réðu lögum og lofum inni á vellinum og sigruðu að lokum með fimm…Lesa meira

true

Flestir nýta ferðatékkann á Hótel Hamri í Borgarnesi

Hægt er að fylgjast með svokölluðu mælaborði ferðaþjónustunnar í gegnum heimasíðu Ferðamálastofu. Þar er meðal annars hægt að fylgjast með notkun 5.000 króna ferðagjafa eftir landssvæðum og flokkum ferðaþjónustu. Þá er einnig hægt að sjá hvaða tíu fyrirtæki hafa fengið flestar ferðagjafir í sinn hlut. Þar efst á lista er Icelandair Hótel Hamar í Borgarnesi…Lesa meira

true

Tæp sex prósent landsmanna búa í strjálbýli

Alls bjuggu 5,9% prósent landsmanna í strjálbýli 1. janúar síðastliðinn, samkvæmt endurskoðum gögnum Hagstofu Íslands um þéttbýlisstaði og byggðakjarna. Með strjálbýli er átt við sveit eða byggðakjarna með færri en 200 íbúa. Fleiri karlar en konur bjuggu í strjálbýli í ársbyrjun þó munurinn sé ekki mikill. Þeir voru 11.748, eða 6,3% allra karlmanna landsins, en…Lesa meira

true

Þúsund manna samkomur eftir verslunarmannahelgi

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur sóttvarnalæknis um að framlengja núverandi samkomubann fram yfir verslunarmannahelgi. Fjöldatakmarkanir munu því miðast við 500 manns til 4. ágúst næstkomandi, en hækka í þúsund eftir verslunarmannahelgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá minnisblaði þess efnis á upplýsingafundi almannavarna þriðjudaginn 21. júlí. Samhliða…Lesa meira

true

Sigur-garðar er þrítugt fyrirtæki og enn í sókn

„Garðaþjónustan Sigur-garðar annast nýsköpun og viðhald á allri almennri garðavinnu frá grænu yfir í grátt.“ Þannig lýsa eigendurnir, þeir Sindri Arnfjörð Sigurgarðarsson og Arnór Guðmundsson á Laufskálum II í Borgarfirði, fyrirtæki þeirra á Facebook síðu fyrirtækisins. Síðastliðinn laugardag var stór dagur hjá þeim. Þrjátíu ár frá stofnun Sigur-garða og samtímis var vígð ný 663 fermetra…Lesa meira

true

30 þúsund landamæraskimanir

Alls hafa rúmlega 50 þúsund ferðamenn komið til landsins frá því skimanir fyrir Covid-19 hófust á landamærunum 15. júní síðastliðinn. Af þeim hafa sýni verið tekin úr tæplega 30 þúsund. Þetta kemur fram í minnisblaði sóttvarnalæknis dagsettu 17. júlí síðastliðinn. Virk smit hafa fundist hjá 14 einstaklingum og innanlandssmit frá þeim greinst hjá ellefu öðrum.…Lesa meira

true

Jafntefli á Skallagrímsvelli í gær

Lið Skallagríms og Ísbjarnarins skildu jöfn þegar þau mættust í sjöundu umferð fjórðu deildar knattspyrnu karla á Skallagrímsvelli í gærkvöldi. Í síðustu umferð tapaði Skallagrímur gegn Hamarsmönnum en Ísbjörninn gerði jafntefli gegn KFB. Leikurinn var jafn allan tíman og mikið boltahnoð einkenndi leikinn. Liðin skiptust á að senda knöttinn sín á milli en hvorugt náði…Lesa meira

true

Hraðfrystihús Hellissands kaupir Esjar SH

Hraðfrystihús Hellissands hefur keypt dragnótarbátinn Esjar SH-75 ásamt 660 tonna veiðiheimildum. Seljandi er útgerðarfélag Esjars sem að stærstum hluta var í eigu Ragnars Guðjónssonar. Að sögn Rögnvaldar Ólafssonar, framkvæmdastjóra Hraðfrystihúss Hellissandi, verður heimahöfn Esjars því áfram í Rifi. Antoni Ragnarssyni skipstjóra og áhöfn Esjars býðst að vera áfram á skipinu. Esjar SH er 55,3 brúttótonna…Lesa meira

true

Bætt við strandveiðikvótann

Aflaheimildir til strandveiða hafa verið auknar um 720 tonn á þessu fiskveiðiári. Verður heildaraflamark strandveiða því 11.820 tonn í ár og hefur aldrei verið meira. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis. Með þessari viðbót er ætlunin að koma til móts við mikla fjölgun báta sem róið hefur verið til strandveiða…Lesa meira

true

Hrönn skipuð forstjóri Matvælastofnunar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað dr. Hrönn Jörundsdóttur í embætti forstjóra Matvælastofnunar til næstu fimm ára. Tekur hún við starfinu 1. ágúst. Hrönn er með BS gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og lauk MS-prófi í umhverfisefnafræði árið 2002 frá Stokkhólmsháskóla. Árið 2009 lauk hún einnig doktorsgráðu í umhverfisefnafræði frá Stokkhólmsháskóla og…Lesa meira