Fréttir

true

Fóru svangir heim úr markaveislu

ÍA mátti sætta sig við tap gegn Breiðabliki þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Kópavogsvelli. Óhætt er að segja að áhorfendur hafi fengið mikið fyrir peninginn, því leikurinn var mikil markaveisla þar sem átta mörk litu dagsins ljós. Fimm þeirra skoruðu Blikar, en Skagamenn þrjú. Leikurinn…Lesa meira

true

Kviknaði í bíl á Vesturlandsvegi

Laust fyrir kl. 16:00 í gær kviknaði í bíl þar sem honum var ekið eftir Vesturlandsvegi skammt fyrir ofan Borgarnes. Ökumaðurinn varð þess var á akstrinum að bifreiðin hitnaði snögglega og eldur kviknaði, að sögn lögreglu. Hann náði að leggja bílnum út í vegkant og koma sér út, áður en hann hafði samband við Neyðarlínu.…Lesa meira

true

Skagamenn falla niður í aðra deild í golfinu

Íslandsmót golfklúbba sem spila í fyrstu deild karla og kvenna fór fram dagana 23.-25. júlí. Keppt var á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Odda. Golfklúbbur Reykjavíkur bar sigur úr býtum í 1. deild kvenna og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar í 1. deild karla. Golfklúbburinn Leynir á Akranesi varð í…Lesa meira

true

Skógarbændur heimsækja Mógilsá og Álfholtsskóg

Félag skógarbænda á Vesturlandi fyrirhugar dagsferð að Mógilsá föstudaginn 7. ágúst næstkomandi. Þar munu starfsmenn á Mógilsá fræða skógarbændur um starfsemina og ganga með þeim um staðinn. Auk þess að heimsækja Mógilsá verður komið við í Álfholtsskógi við Stóru Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit á heimleið og að lokum borðum á Laxárbakka. Í tilkynningu frá félaginu segir…Lesa meira

true

Björgunarsveitir í verkefnum um helgina

Síðdegis í gær fundu björgunarsveitarmenn göngufólk á Trékyllisheiði við Búrfelli á Ströndum. Fólkið hafði náð að láta vita af sér, en var orðið kalt og hrakið á heiðinni. Fólkið bar sig nokkuð vel, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu, en var orðið blautt og kalt enda hafði rignt mikið fyrr um daginn. Björgunarsveitafólkið gaf þeim heitt…Lesa meira

true

Kosið í september á næsta ári

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun leggja til að næst verði kosið til Alþingis laugardaginn 25. september 2021, en yfirstandandi kjörtímabili hefði að öðrum kosti lokið 25. október á næsta ári. Tímasetning næstu þingkosninga hefur verið nokkuð í umræðunni undanfarin misseri. Rík hefð hefur verið fyrir vorkosningum á lýðveldistímanum, en þær hafa nær allar farið fram að…Lesa meira

true

Borgarbyggð leggst gegn því að sorpurðun verði aukin í Fíflholtum

„Byggðarráð Borgarbyggðar leggst almennt gegn aukinni urðun, enda markvisst unnið að því að draga úr urðun meðal íbúa sveitarfélagsins. Það samræmist því ekki framtíðaráformum stjórnvalda í úrgangsmálum eða stefnumörkun sveitarfélagsins að auka urðun úrgangs í Fíflholtum,“ segir í bókun sem byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti í gær. Tilefnið þessa svars var beiðni stjórnar Sorpurðunar Vesturlands þar sem…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu gegn Stjörnunni

Liðsmenn ÍA máttu sætta sig við tap 1-2 gegn Stjörnunni þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesvelli í gærkvöldi. Eftir jafnan baráttuleik framan af fyrri hálfleik komust Stjörnumenn yfir á 23. mínútu. Þeir áttu hornspyrnu frá vinstir sem Skagamenn skölluðu frá markinu. Boltinn barst utarlega í vítateiginn, hægra…Lesa meira

true

Takk veggjum fjölgað á Vesturlandi

Hvatningarátakið „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar,“ er eins og kunnugt er tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Fyrir 40 árum stigu Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og voru til fyrirmyndar með því að verða fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum. Í tilefni þess að Vigdís varð níutíu ára á…Lesa meira

true

Útgáfa Skessuhorns næstu vikurnar

Skessuhorn verður gefið út næstkomandi miðvikudag, 29. júlí. Eftir það fer starfsfólk í viku sumarleyfi og verður skrifstofan lokuð til og með þriðjudeginum 4. ágúst. Ekkert blað kemur því út miðvikudaginn 5. ágúst. Fyrsta tölublað eftir frí kemur út miðvikudaginn 12. ágúst. Ábendingar um fréttir, auglýsingar og aðsendar greinar óskast sem fyrst fyrir útgáfu blaðsins…Lesa meira