Fréttir

true

Skallagrímskonur á leið í höllina

Skallagrímskonur eru komnar í undanúrslit Geysisbikarsins í körfuknattleik, eftir stórsigur á ÍR í gærkvöldi, 51-86. Leikið var í Seljaskóla í Reykjavík. Um skyldusigur var að ræða hjá Skallagrími. Borgarnesliðið er í hörkubaráttu í fjórða sæti Domino‘s deildarinnar en ÍR spilar í 1. deild. Heimaliðið skoraði fyrstu stigin en Skallagrímskonur voru sterkari og komust í 2-8.…Lesa meira

true

Dæmdur fyrir brot á skattalögum og bókhaldslögum

Héraðsdómur Vesturlands kvað í síðustu viku upp dóm í máli sem héraðssaksóknari höfðaði gegn Engilbert Runólfssyni á Akranesi fyrir; „meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldslögum í sjálfstæðri atvinnustarfssemi og fyrir peningaþvætti,“ eins og segir í málsgögnum. Ákært er fyrir að hafa staðið skil á efnislega rangri virðisaukaskattsskýrslu vegna sjálfstæðrar atvinnustarfssemi í lok árs 2017…Lesa meira

true

Fasteignaviðskipti á Vesturlandi í desember

Á Vesturlandi var 48 kaupsamningum um húsnæði þinglýst í desembermánuði. Þar af voru 22 samningar um eignir í fjölbýli, 14 samningar um eignir í sérbýli og 12 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.912 milljónir króna og meðalupphæð á samning 39,8 milljónir króna í þessum viðskiptum. Af þessum 48 samningar voru 28 um eignir…Lesa meira

true

Sjöfn ráðin forstöðumaður Öldunnar í Borgarnesi

Borgarbyggð auglýsti nýverið starf forstöðumanns Öldunnar í Borgarnesi laust til umsóknar. Fimm sóttu um en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Nú hefur verið kynnt að Sjöfn Hilmarsdóttir hefur verið ráðin tímabundið í starf forstöðumanns. „Sjöfn er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur góða þekkingu á lögum er varða málefni…Lesa meira

true

Setja upp löggæslumyndavélar innanbæjar

Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur fyrir sitt leyti samþykkt tillögu skipulags- og umhverfisráðs þar sem fjallað er um drög að samningi um að koma upp löggæslumyndavélum innanbæjar á Akranesi. Kostnaði vegna verkefnsins er áætlaður allt að fjórar milljónir króna.Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir á norðanverðu Snæfellsnesi

Nú á fjórða tímanum í dag tilkynnti Rarik um rafmagnstruflunir á dreifikerfinu á Snæfellsnesi norðanverðu. Vinna er í gangi við lagfæringar. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

true

Söfnuðu fyrir hlýjum teppum

Þeir Gunnar Ágúst Ásgeirsson, Bjarki Þór Aðalsteinsson og Ólafur Dór Baldursson fóru á milli staða á Akranesi fyrir jólin og léku jólalög við góðar undirtektir. Tilefnið var söfnunarátak til styrktar UNICEF á Íslandi en þeir vildu safna fyrir hlýjum teppum í Sönnum gjöfum handa börnum í neyð. Frá þessu var greint á vef UNICEF á…Lesa meira

true

Gul viðvörun í gildi

Gul viðvörun er í gildi við Breiðafjörð og Faxaflóa í dag og fram á kvöld. Á Faxaflóasvæðinu er búist við hvassviðri með vindhraða á bilinu 15-20 m/s. Þá má einnig búast við talsverðum éljagangi með skafrenningi og lélegu skyggni sem gæti haft áhrif á akstursskilyrði. Við Breiðafjörð er einnig búist við hvassviðri eða stormi með…Lesa meira

true

Stórt tap í Hveragerði

Skallagrímur reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Hamar, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Leikið var í Hveragerði og það voru heimamenn sem sigruðu örugglega, 110-78. Borgnesingar byrjuðu leikinn illa, skoruðu ekki stig fyrstu sex mínúturnar og á meðan komust Hvergerðingar í 15-0. Skallagrímsmenn náðu þó ágætis rispu…Lesa meira

true

Tap í fjörugum leik

Snæfellingar biðu lægri hlut gegn liði Álftaness á útivelli, 127-110, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Eins og lokatölur gefa til kynna var leikurinn hraður og bæði lið settu allt sitt púður í sóknarleikinn. Áhorfendur fengu því skemmtilegan og fjörugan leik. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og staðan…Lesa meira