Fréttir

true

Skessuhorn nú aðgengilegt á timarit.is

Síðastliðið haust var gengið frá samningi milli Landsbókasafns Íslands og Skessuhorns ehf. um rafræna birtingu allra tölublaða Skessuhorns frá upphafi útgáfunnar 1998 á vefnum timarit.is. Nú er lokið við að setja efnið inn og aðgengilegt þeim sem vilja glugga í það. Alls er nú 21 árgangur af blaðinu kominn í birtingu; árin 1998 til og…Lesa meira

true

Mannauðs- og gæðastjóri hjá LbhÍ

Guðmunda Smáradóttir hefur verið ráðin í starf mannauðs- og gæðastjóra við Landbúnaðarháskóla Íslands og hóf hún störf um áramótin. Guðmunda er með meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun og stefnumótun. Þá hefur hún lokið PLD námi (Program Leadership Development) frá IESE viðskptaháskólanum í Barcelona, auk þess að hafa lokið markþjálfunarnámi og…Lesa meira

true

Nýtt skipurit Landmælinga Íslands

Í nýjasta Kvarðanum, tímariti Landmælinga Íslands, er greint frá því að 1. desember síðastliðinn tók nýtt skipurit LMÍ formlega gildi. Það var unnið í framhaldi af niðurstöðum úr vinnu starfsmanna á sérstökum starfsdegi í september og kynnt á starfsmannafundi 29. október. Í skipuritinu eru helstu málaflokkar Landmælinga Íslands skilgreindir og endurspegla þeir hlutverk og grunnverkefni…Lesa meira

true

Körfu ársins skoraði Gunnar Örn í MB

Á Áskorendadegi í Menntaskóla Borgarfjarðar í vikunni sem leið var keppt í körfubolta. Í skólanum eru margir nemendur sem æfa íþróttir af kappi og meðal annars körfubolta. Í mjög jafnri og skemmtilegri viðureign nemenda og kennara voru sýnd mikil tilþrif þar sem nemendur snéru af sér annars knáa kennara. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá magnaða…Lesa meira

true

Viðvörun vegna suðaustan roks og asahláku í kvöld

Í dag er spáð vestlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s, en hvassari austanlands fram yfir hádegi. Skýjað verður með köflum og stöku él. Frost 0 til 8 stig. Síðan hvessir í kvöld, þykknar upp og fer að hlýna. Suðaustan og sunnan 18-28 m/s í nótt, hvassast í vindstrengjum á Norðurlandi. Talsverð rigning, en úrkomuminna um…Lesa meira

true

Rannsökuðu háttsemi hrossa í haga

Í nýjasta tölublaði Náttúrufræðingsins, félagsrits Hins íslenska náttúrufræðifélags og tímarits Náttúruminjasafns Íslands, er áhugaverð grein eftir þær Hrefnu Sigurjónsdóttur og Söndru M Granquist. Í greininni er birt niðurstaða rannsóknar á hátterni hrossa. Hross eru félagslyndar skepnur og mynda mismikil tengsl við önnur og óskyld hross. „Hestar kljást og þeir slást – en af hverju? Í…Lesa meira

true

Fyrirlestur um Reykhyltingana 1569-1807

Fyrirlestrar í héraði í Snorrastofu hefjast á nýju ári með fyrirlestri sr. Geirs Waage sóknarprests í Reykholti, þriðjudaginn 21. janúar kl. 20. Þar fjallar hann um forvera sína á Reykholtsstað og staðinn sjálfan frá árinu 1569 til 1807, þegar staðurinn var setinn af svonefndum Reykhyltingum. Umbroti siðaskiptanna lýkur í Reykholti með því að síra Jóni…Lesa meira

true

Leggja til að öllum sjúkraflutningum verði stýrt frá einni miðstöð

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur að framtíðarskipulagi sjúkraflutninga á Íslandi, í samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030, hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum. Meginniðurstaða hópsins er að umsjón með sjúkraflutningum á landinu öllu þurfi að vera á einni hendi. Lagt er til að sett verði á fót miðstöð bráðaþjónustu og sjúkraflutninga (MBS) sem hafi…Lesa meira

true

Fimm skip eru nú við loðnuleit

Í gær voru fimm skip að byrja leit og mælingar á loðnustofninum. Þrjú skipanna, Rannsóknaskipið Árni Friðriksson, Hákon EA og Polar Amaroq er ætlað að sjá um magnmælingar meðan að tvö önnur skip, Bjarni Ólafsson AK og Ásgrímur Halldórsson SF, eru nokkurskonar undanfarar og er ætlað að afmarka dreifingu loðnunnar á útjöðrunum svo hægt sé…Lesa meira

true

Fjölmenni á Mannamóti í gær

Mannamót Markaðstofanna var haldið í Kórnum í Kópavogi í gær. Viðburðurinn er haldinn árlega af Markaðsstofum landshlutanna. Markmið mannamóts er að skapa vettvang fyrir ferðaþjónustuaðila til að kynna sér þá fjölbreyttu ferðaþjónustu sem rekin er á landsbyggðinni, sem og fyrir ferðaþjónustuaðila að mynda tengsl sín á milli. Ekkert laust pláss var á sýningunni, öll 270…Lesa meira