Fréttir

true

Þrátt fyrir mikla hækkun fasteignamats er hófleg hækkun skatta á Akranesi

Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman breytingar á fasteignagjöldum milli áranna 2019 og 2020 í 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Breytingarnar eru reiknaðar í krónum miðað við meðal fasteigna- og lóðamat í ákveðnum hverfum hjá þeim sveitarfélögum sem voru til skoðunar en fasteignagjöld eru í flestum tilfellum lögð á miðað við fasteigna- og lóðamat. Akraneskaupstaður er eina…Lesa meira

true

Jana prýðir nú nýtt lógó Ölkeldubúsins

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins heldur meðal annars um skýrsluhald í kúabúskap. Í nýlegri frétt RML er fjallað um hinn aldna kostagrip Jönu 432 á Ölkeldu 2 í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Kýrin Jana hefur nú bæst í hóp þeirra afreksgripa sem rofið hafa 100 tonna múrinn í æviafurðum. Um nýliðin áramót hafði hún mjólkað 100.449 kg mjólkur yfir…Lesa meira

true

FVA féll úr leik

Fjölbrautaskóli Vesturlands beið lægri hlut gegn liði Borgarholtsskóla í 16 liða úrslitum spurningakeppninnar Gettu betur í gærkvöldi. Viðureigninni lauk með 21-16 sigri Borghyltinga og hefur FVA því lokið keppni í Gettu betur að þessu sinni. Lið FVA skipuðu þau Guðmundur Þór Hannesson, Amalía Sif Jessen og Karl Ívar Alfreðsson.Lesa meira

true

Fasteignamarkaður í jafnvægi

Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár um þinglýsingar árið 2019 var meðalviðskiptaverð með íbúðarhúsnæði á Íslandi árið 2019 um 46 milljónir króna samanborið við 44 m.kr. árið 2018. Fjöldi þinglýsinga stóð nokkurn veginn í stað á flestum svæðum landsins. Hins vegar dróst fjöldi kaupsamninga um stakar íbúðir saman um 4% á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2019 miðað…Lesa meira

true

Lausnir á krossgátu og myndagátu í Jólablaði Skessuhorns

Mjög góð þátttaka lesenda var í að senda inn lausnir á myndagátu og krossgátu sem birtist í Jólablaði Skessuhorns 18. desember síðastliðinn. Vel á þriðja hundrað lausnir bárust, öllu fleiri lausnir við krossgátunni. Dregið var úr réttum innsendum lausnum og fá tveir heppnir þátttakendur peningaverðlaun sem nægja á til að fara út að borða í…Lesa meira

true

Jóhanna María er nýr verkefnastjóri hjá Dalabyggð

Jóhanna María Sigmundsdóttir hefur tekið til starfa hjá sveitarfélaginu Dalabyggð en hún hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra atvinnu-, markaðs- og ferðamála. Um er að ræða starf sem er hluti af nýrri stefnu Dalabyggðar um að efla markaðsmál, styrkja ímynd sveitarfélagsins og gera það sýnilegri. Jóhanna María kemur til Dalabyggðar frá því að vera framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Rafræn Afladagsbók að taka við handskrifaðri

Fiskistofa hefur látið smíða, í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og hugbúnaðarfyrirtækið Stokk, smáforritið Afladagbókina. Innleiðing á notkun smáforritsins fyrir snjalltæki í stað afladagbóka á pappír hefst á næstunni. Stærri skip skila rafrænum afladagbókum til Fiskistofu en flestallir smábátar hafa fram til þessa skilað afladagbókum á pappír. Hægt er að sækja nýja forritið í App Store og…Lesa meira

true

Útbrunninn í leit að hugarró og fór að mála landslagsmyndir

„Ég bjóst alls ekki við svona rosalegum viðbrögðum. Ég var bara voða lítill í mér og hugsaði að fólk myndi ekki vilja mynd frá mér,“ segir Sigurður Mikael Jónsson sem ákvað að koma landslagsmyndum sínum betur á framfæri í upphafi árs með því að opna Facebook síðu fyrir myndirnar, Smjmyndir. Mikael man nákvæmlega hvenær hann…Lesa meira

true

Sjúkraþjálfari opnar heilsueflingarsetur í Borgarnesi

Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir er fædd og uppalin í Borgarnesi og flutti aftur í heimahagana síðastliðið haust. Rakel Dögg er við það að opna nýtt heilsueflingarsetur undir nafninu Stoð & Styrkur á B59. Hún er dóttir Sigurgeirs Erlendssonar og Önnubellu Albertsdóttur sem reka Geirabakarí í Borgarnesi, en þar hitti blaðamaður Skessuhorns einmitt Rakel að máli og…Lesa meira

true

Fjöliðjan mun að nýju fara að Dalbraut 10

Á fundi bæjarstjórnar Akraness á þriðjudaginn var samþykkt samhljóða tillaga skipulags- og umhverfisráðs að stefnt verði að því að starfsemi Fjöliðjunnar verði að nýju flutt að Dalbraut 10. Eins og kunnugt er var starfsemin flutt í bráðabirgðahúsnæði hjá Akri á Smiðjuvöllum eftir að bruni varð í húsnæði Fjöliðjunnar að kvöldi 7. maí á síðasta ári.…Lesa meira