Fréttir

true

Enn er bálhvasst um vestanvert landið – erfið færð eða ófært

Mikið hvassviðri hefur síðan í gærdag einkennt veðráttuna um vestanvert landið. Hávaða rok af norðaustan stingur sér illa niður á svæðum þar sem vindur stendur af fjöllum. Á Kjalarnesi þurfti í gærkvöldi að loka veginum fyrir umferð eftir að ökumenn voru að lenda í vandræðum. Á sunnanverðu Snæfellsnesi var mjög hvasst og fór vindur á…Lesa meira

true

Sjávarlíf er einstakur ljósmyndavefur úr undirdjúpunum

Erlendur Bogason kafari hefur um langt árabil safnað myndum af sjávarlífverum og hafsbotni. Myndir hans hafa nú verið gerðar aðgengilegar á vefnum sjavarlif.is en þær hafa allar verið teknar neðansjávar við Íslandsstrendur. Í kynningu á verkefninu segir að efnið á vefnum muni nýtast við rannsóknir og fræðslu fyrir sjávarútveg og almenning. Myndefnið flokkast í nokkra…Lesa meira

true

Mótmæla því að Skógarstrandarvegur er ekki á samgönguáætlun á næstunni

Frestur til að senda umsagnir til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna samgönguáætlunar rann út síðastliðinn föstudag. Um er að ræða umsagnir um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024 en auk þess 15 ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 – 2034. Nokkur sveitarfélög og fulltrúar þeirra á Vesturlandi gera athugsemdir í ljósi þess…Lesa meira

true

Vegir víða lokaðir

Mjög hvöss norðaustanátt er nú um allt vestanvert landið og appelsínugul veðurviðvörun í gildi. Vegir eru lokaðir um Kjalarnes, Fróðárheiði, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á sunnanverðu Snæfellsnesi er ófært. Annars er snjóþekja og þæfingar víða á vegum. Flughálka er í Álftafirði.Lesa meira

true

Þétt raðað vatnslitamyndum á veggjum Safnahúss

Síðastliðinn laugardag var opnuð stór sýning vatnslitamynda í Hallsteinssal Safnahússins í Borgarnesi. Verkin gerðu átta konur sem eiga það meðal annars sameiginlegt að hafa bakgrunn úr námi við Myndlistarskóla Kópavogs hjá Derek Mundell. Þá hafa þær allflestar tengingu við Borgarfjörð og því var þessi sýningarstaður valinn. Þær halda auk þess hópinn og hittast vikulega til…Lesa meira

true

Félagsmiðstöðin Arnardalur á Akranesi fjörutíu ára

Í gær, sunnudaginn 12. janúar, voru rétt 40 ár frá því stofnað var til félagsmiðstöðvarinnar Arnardals á Akranesi, en starfsemin heyrir í dag undir Frístundamiðstöðina Þorpið. Afmælisins verður minnst með ýmsum viðburðum allt þetta ár. Á heimasíðu Þorpsins er farið létt yfir söguna. Þar segir m.a. að í 28 ár og tuttugu daga hafi Arnardalur…Lesa meira

true

Gestirnir of stór biti

Snæfellingar máttu játa sig sigraða á heimavelli gegn Hetti þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Gestirnir frá Egilsstöðum höfðu undirtökin allan leikinn og sigruðu að lokum örugglega, 68-93. Höttur byrjaði betur og skoraði fyrstu níu stig leiksins en Snæfellingar fundu sig ekki í fyrsta leikhluta. Mest höfðu gestirnir 15 stiga…Lesa meira

true

Námskeiðskvöldi í Snorrastofu frestað

“Vegna veðurútlits mánudaginn 13. janúar, verður námskeiðskvöldi um Sturlu Þórðarson og Sturlungu, sem vera átti í Reykholti, frestað. Nánar tilkynnt síðar,” segir í tilkynningu.  Lesa meira

true

Háspenna í Hólminum

Snæfell beið lægri hlut gegn Keflavík, 75-84, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi og fengu áhorfendur æsispennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Gestirnir höfðu heldur yfirhöndina í upphafi og leiddu með sex stigum um miðjan fyrsta leikhulta. Þá tóku Snæfellskonur góða…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun fyrir allt Vesturland síðdegis

Veðurfræðingar benda á að spá fyrir lægð sem gengur inn á landið í dag boðar enn meira hvassviðri en spáð hafði verið í gær. Appelsínugul viðvörun gildir fyrir Faxaflóasvæðið frá klukkan 16 í dag og fram á nóttina, en veðrið mun vara lengur á Breiðafjarðarsvæðinu. Faxaflóasvæðið: „Norðaustan 20-28, hvassast á Snæfellsnesi með vindhviðum yfir 40…Lesa meira