Fréttir

true

Helgarverkefni lögreglu af ýmsum toga

Að vanda voru verkefni lögreglunnar á Vesturlandi af ýmsum toga um nýliðna helgi. Síðustu þorrablót ársins voru haldin og fóru vel fram og án teljandi afskipti lögreglu. Vinkonur skelltu sér í sund í Bjarnalaug á Akranesi, utan opnunartíma, og var lögregla fengin til að vísa þeim úr lauginni. Þá var nokkuð um vegfarendur sem fest…Lesa meira

true

Snæfell tapaði heima gegn Val

Snæfell tapaði fyrir Val, 60-79, í kaflaskiptum leik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gær. Valur hafði heldur yfirhöndina í upphafi leiks en Snæfellskonur fylgdu gestunum eins og skugginn. Þegar fyrsti leikhluti var rúmlega hálfnaður leiddi Valur með einu stigi, 10-11. Gestirnir náðu síðan smá rispu undir lok leikhlutans og…Lesa meira

true

Breytt ásýnd á Skálasnaga

Skálasnagi er drangur sem stendur úr sjó undir Svörtuloftum vestast á Öndverðarnesi á Snæfellsnesi. Þar stendur einnig Skálasnagaviti uppi á þessum hrikalegu hömrum ofan við kraftmikið brimrótið. Fallegt er um að litast á þessum stað enda vinsæll áningarstaður ferðamanna og ljósmyndara. Til eru ótal ljósmyndir þaðan hver annarri fallegri. Brimið sverfur að þarna eins og…Lesa meira

true

Valdís Þóra hafnaði í 57. sæti í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í 57. sæti á ISPS mótinu í Ástralíu. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni, sterkustu mótaröð í heimi. Valdís byrjaði vel í mótinu, lék fyrstu tvo hringina á pari og komst auðveldlega í gegnum niðurskurðinn. Þriðja hringinn lék hún á 74 höggum, tveimur yfir pari og síðasta…Lesa meira

true

Skallagrímur stakk ÍA af í síðari hálfleik

ÍA tók á móti Skallagrími í Vesturlandsslag 1. deildar karla í körfuknattleik í gær. Eftir jafnan fyrri hálfleik tók Skallagrímur öll völd á vellinum í þeim síðari og sigraði að lokum örugglega, 81-115. Skagamenn voru sterkara lið vallarins í upphafi leiks en Borgnesingum gekk illa að finna taktinn. ÍA hafði tíu stiga forskot, 19-9, um…Lesa meira

true

Góður lokasprettur skilaði Snæfelli sigri

Snæfell vann góðan sigur á Hamri, 101-94, eftir jafnan og spennandi leik í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og gestirnir úr Hveragerði leiddu með tveimur stigum að honum loknum, 16-18. Snæfell jafnaði snemma í öðrum leikhluta og komst síðan yfir skömmu síðar, 24-23. Næstu stig voru Snæfells en eftir…Lesa meira

true

Hvessir af austri í dag

Síðdegis í dag hvessir af austri með snjókomu og skafrenningi á fjallvegum sunnan og suðvestanlands. Á láglendi má búast við rigningu. Á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli spáir austanátt 15-23 m/s en vindkvðum allt að 35 m/s, einkum frá kl. 19:00 til 2:00 í nótt. Á Vesturlandi og Vestfjörðum eru víða hálkublettir á vegum, sem og…Lesa meira

true

Fiskvinnsla Ísfisks er hafin á Akranesi

Fyrirtækið Ísfiskur hf. hóf í dag fiskvinnslu á Akranesi. Fyrirtækið keypti sem kunnugt er bolfiskvinnsluhús HB Granda síðastliðið haust, auk þess sem hluti fiskvinnslubúnaðar fylgdi með í kaupunum. Í dag hófu 24 starfsmenn sem ráðnir hafa verið til fyrirtækisins vinnslu á ýsu í vinnslusalnum á Akranesi. Að sögn Alberts Svavarssonar, framkvæmdastjóra Ísfisks, er stefnt að…Lesa meira

true

Stelpó í Grundó

Nú á dögunum var stofnaður hópur á fésbókinni sem ber heitið Stelpó í Grundó. Þarna er vettvangur fyrir kvenkyns Grundfirðinga til að hópa sig saman til hvers kyns dægrastyttingar og leik í skammdeginu. Það var Elsa Fanney Grétarsdóttir sem stofnaði hópinn en markmiðið er að auðvelda konum að sameinast í skemmtilegum athöfnum. „Nú þegar er…Lesa meira

true

Ísmót Borgfirðings á morgun

Félagsmenn í Borgfirðingi, hinu nýja borgfirska hestamannafélagi, ætla að gera sér glaðan dag og hittast á Vatnshamravatni á morgun, laugardag og reyna með sér á Ísmóti. Keppt verður í þremur flokkum, karlar 18 ára og eldri, konur 18 ára og eldri og svo börn og unglingar 17 ára og yngri. Keppt verður með firmakeppnissniði, allir…Lesa meira