Fréttir

true

Gunna Dan var kjörin Borgnesingur ársins

Á Borgarnesblótinu sem fram fór síðastliðinn laugardag var Borgnesingur ársins 2017 útnefndur. Er þetta í annað sinn sem staðið er að þessari útnefningu á Borgarnesblótinu og hlaut hana að þessu sinni Guðrún Emilía Daníelsdóttir, ætíð kölluð Gunna Dan, nafnbótina að þessu sinni og er vel að henni komin. Það var Gunnlaugur Júlíusson sveitarstjóri sem tilkynnti…Lesa meira

true

Valdís Þóra örugg áfram á LPGA mótinu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst örugglega í gegnum niðurskurðinn á ISPS Honda Women‘s Open mótinu í Ástralíu. Mótið er sem kunnugt er hluti af LPGA mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi. Hringur Valdísar var sveiflukenndur en að lokum kom hún í hús á 72 höggum, pari vallarins, rétt eins og á fyrsta hringnum…Lesa meira

true

ÍA tapaði stórt í endurkomu Marcusar

Einn leikur fór fram í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Það var viðureign ÍA og Gnúpverja, sem fór fram í Kórnum í Kópavogi. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik stungu Gnúpverjar af í þriðja leikhluta og sigruðu stórt, 103-62. Skagamenn skoruðu fyrstu stigin í leiknum en Gnúpverjar komust yfir um miðjan upphafsfjórðunginn. Þeir héldu…Lesa meira

true

Skaginn 3X og samstarfsfyrirtæki setja upp verksmiðju á Kúrileyjum

Tæknifyrirtækin Skaginn 3X á Akranesi og Frost ehf. og Rafeyri ehf. á Akureyri hafa undirritað samning um uppsetningu fullkominnar uppsjávarverksmiðju á Kúrileyjum. Verksmiðjan er byggð fyrir dótturfélag rússneska útgerðarfélagsins Gidrostroy. Þar verður mögulegt að flokka, pakka og fyrsta 900 tonn af uppsjávarfiski á hverjum sólarhring. Kurileyjar eru við austurströnd Rússlands, milli Kamtsjatkaskaga og Japans. Á…Lesa meira

true

Söfnuðu fyrir Teigasel

Foreldrafélag leikskólans Teigasels á Akranesi safnaði nýlega um 106 þúsund krónum til leikfangakaupa á leikskólann í tilefni 20 ára afmælis leikskólans á árinu. „Við héldum myndlistarsýningu og vöfflukaffi fyrir foreldra, ömmur og afa á leikskólanum laugardaginn 3. febrúar. Hvert barn var búið að gera fjögur eða fimm listaverk fyrir sýninguna sem aðstandendur barnsins gátu keypt…Lesa meira

true

Þorrablót Neshrepps utan Ennis

Íbúar létu veðrið ekki aftra sér á laugardagskvöldið frá því að halda Þorrablót Neshrepps utan Ennis, sem fram fór í Röstinni á Hellissandi. Það voru Lionsklúbbur Nesþinga, Lionsklúbburinn Þerna og Kvenfélag Hellissands sem stóðu að blótinu. Vel var mætt á blótið en 180 miðar seldust á það. Veislustjóri var hin eina sanna Dóra Unnars og…Lesa meira

true

Leikskólabörn í heimsókn á slökkvistöðinni

Í tilefni 112 dagsins var elsta árgangi í leikskólum Akraness og Hvalfjarðarsveitar boðið í heimsókn á slökkvistöðina á Akranesi í lok síðustu viku. Þar var vel tekið á móti börnunum og Þráinn Ólafsson slökkvisstjóri fræddi þau um hvað skyldi gera ef eldur verður laus. Kennarar barnanna fengu svo að spreyta sig á slökkvitækjunum áður en…Lesa meira

true

Krossgátur Skessuhorns samdar á Nýja Sjálandi

Til marks um það hversu tæknin hefur afmáð ýmis landamæri er gaman að segja frá því að krossgátur sem birtast hér í Skessuhorni í vetur eru gerðar á Nýja Sjálandi. Erla Guðmundsdóttir, sem alla jafnan býr á Akranesi, dvelur í vetur hjá skyldfólki sínu á Nýja Sjálandi og sleikir þar sólina. Erla er fjallbrött, þótt…Lesa meira

true

Héldu 112 daginn á mánudag

112 dagurinn var haldinn hátíðlegur í Búðardal á mánudaginn, en dagskráin var færð til um einn dag vegna óhagstæðrar veðurspár. Að venju hófu björgunaraðilar dagskrána með því að keyra lest björgunarbíla hringinn í kringum Búðardal með viðeigandi sírenuhljóðum og blikkljósum. Að þessu sinni gátu snjósleðar Björgunarsveitarinnar Óskar fylgt með í för en undanfarin ár hefur…Lesa meira

true

Valdís Þóra lék vel í Ástralíu í nótt

Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir lék vel á fyrsta hring LPGA-mótsins í Ástralíu í nótt. Hún lék á pari vallarins, 72 höggum og er jöfn í 47. sæti. sæti. Stendur hún því vel að vígi fyrir framhaldið, en efstu 70 komast í gegnum niðurskurðinn. Valdís byrjaði vel í mótinu, fékk fugl stra á annarri holu en…Lesa meira