Fréttir

true

Kröpp lægð gengur yfir í fyrramálið

„Vakin er athygli á veðurhvelli sem spáð er að gangi hratt yfir landið í fyrramálið. Suðvestanlands á milli klukkan 7 og 10 með allt að 23-28 m/s og snjókomu og slæmu skyggni í efri byggðum og austur frá Reykjavík. Hviður verða allt að 40 m/s á Reykjanesbraut um klukkan 8 og fram yfir klukkan 10…Lesa meira

true

Einar Örn setti þrjú Íslandsmet

Tvö kraftlyftingamót voru haldin á Akureyri um helgina. Annars vegar Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum og hins vegar Íslandsmeistaramótið í bekkpressu. Einar Örn Guðnason frá Kraftlyftingafélagi Akraness keppti á báðum mótum. Hann hampaði Íslandsmeistaratitli í kraftlyftingum í 105 kg flokki. Lyfti Einar Örn 360 kg í hnébeygju, 251 kg í bekkpressu og 280 kg í réttstöðulyftu. Samanlagt…Lesa meira

true

Frábær skíðahelgi að baki

Það var mikið fjör í skíðabrekkunni í Grundarfirði um liðna helgi. Veðrið lék við gesti og mjög gott færi var. Bæði heimamenn sem gestir nýttu sér þessar góðu aðstæður. Skíðadeild Snæfellsness bauð einnig upp á skíðakennslu á sunnudeginum en Haukur Árni Hjartarson sá um að kenna yngstu kynslóðinni réttu hand- og fótatökin í lyftunni og…Lesa meira

true

Vilja kenna fólki í Kenía að búa til ilmkjarnaolíur

Hraundís Guðmundsdóttir ilmolíufræðingur og Ragnar Sverrisson sjálfboðaliði hyggjast nú sameina krafta sína og fara til Kenía í þeim tilgangi að kenna heimamönnum að búa til ilmkjarnaolíur. Af því tilefni hafa þau efnt til söfnunar inni á Karolina Fund. „Markmið okkar með að sækja um fjármagn til einstaklinga er að kynna og kenna fólki í Kenía…Lesa meira

true

112 dagurinn í Snæfellsbæ

Árlegum 112 degi í Snæfellsbæ var líkt og víða um landið frestað vegna veðurs 11. febrúar síðastliðinn. Hann var hins vegar haldinn á sunnudaginn. Viðbragðsaðilar komu þá saman við slökkvistöðina í Ólafsvík en þaðan var ekið um bæjarfélagið og endað við björgunarstöðina Von í Rifi. Í Von voru tæki og tól viðbragðsaðila til sýnis og…Lesa meira

true

Flutningabíll lenti útaf og valt á hliðina

Það óhapp varð nú síðdegis í dag á þjóðveginum austan við Berserkseyri á Snæfellsnesi að flutningabíll fékk á sig vindhviðu og hafnaði á hliðinni á vegbrúninni. Ökumaður var fluttur til læknisskoðunar og reyndist nánast ómeiddur, einungis marinn. Bíllinn var tómur þegar óhappið varð.Lesa meira

true

Aftur bilun í Örfirisey RE

Frystitogarinn Örfirisey RE er nú í höfn í Hammerfest í Norður-Noregi en þangað dró frystitogarinn Kleifaberg ÓF skipið um helgina. Þá hafði orðið vart við enn eina bilunina í vélbúnaði skipsins. Herbert Bjarnason, tæknistjóri skipa hjá HB Granda, segir á vef fyrirtækisins að ljóst sé að eitthvað hafi misfarist þegar aðalvél Örfiriseyjar var tekin upp…Lesa meira

true

Reiðhallarnefnd komið á fót

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja til við Akraneskaupstað og Hestamannafélagið Dreyra að skipuð yrði nefnd um byggingu reiðskemmu hestamannafélagsins. Hlutverk nefndarinnar verður að skoða uppbyggingu, eignarhald og rekstrarfyrirkomulagi reiðskemmu sem Dreyrafélagar vilja byggja á félagssvæði sínu á Æðarodda. Nefndin verður skipuð einum fulltrúa frá hvoru sveitarfélagi og tveimur fulltrúum hestamannafélagsins. Bæjarráð…Lesa meira

true

Gengið vel síðan Baldur hóf siglingar að nýju

Sem kunnugt er bilaði aðalvél Breiðarfjarðarferjunnar Baldurs undir lok nóvembermánaðar. Bilunin reyndist alvarlegri en talið var í fyrstu og af þeim sökum lágu ferðir niðri þar til 23. janúar. Þá var farin prufusigling að morgni dags og Baldur hóf síðar siglingar samkvæmt áætlun síðdegis sama dag. Að sögn Nadine Walter, markaðs- og sölustjóra Sæferða, hafa…Lesa meira

true

Hjónum verði heimilt að eiga sitthvort lögheimilið

Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra sveitarstjórnarmála ætlar í næsta mánuði að leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um lögheimili og aðsetur. Þar verður gert ráð fyrir að hjónum verði heimilt að eiga sitt hvort lögheimilið og einnig að Þjóðskrá Íslands skuli senda tilkynningu til þinglýsts eiganda fasteignar um þá sem skrá lögheimili sitt í fasteign…Lesa meira