Fréttir

true

Veður tekið að ganga niður

Skil krapprar lægðar eru nú að mestu gengin yfir vestanvert landið og vindur farinn að ganga niður. Um tíma í morgun var mjög hvasst á Vesturlandi og þurfti að loka vegum. Hægt er að fylgjast með gangi lægðarinnar á vefnum https://windy.com Meðfylgjandi myndir voru teknar á Akranesi í morgun. Þar þurfti að tryggja landfestar á…Lesa meira

true

Björn Bjarki segir mál að linni í sveitarstjórn

Björn Bjarki Þorsteinsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og forseti sveitarstjórnar hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. „Ég hef verið oddviti í þrennum kosningum þar sem unnust sigrar með sterkri og góðri liðaheild, góðum liðsanda og öflugum stuðningsmönnum. Kosningabaráttan hefur ávallt verið háð án neikvæðni gagnvart mótframbjóðendum,…Lesa meira

true

Heilsársvegur um Skógarströnd yrði bylting fyrir byggðarlögin

Bjarni Jónsson, varaþingmaður VG í Norðvesturkjördæmi, lagði í byrjun febrúar fram þingsályktunartillögu um uppbyggingu Skógarstrandarvegar. Samkvæmt henni yrði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra falið að gera fjölþætta hagkvæmnisathugun á uppbyggingu vegarins sem heilsársvegar. Athugunin á að taka til samfélagslegra og byggðarlegra áhrifa þess að efla með því samgöngur milli byggðarlaga á norðanverðu Snæfellsnesi, um Dali, í Reykhólasveit,…Lesa meira

true

Fundað á Kjalarnesi um ástand Vesturlandsvegar

Á morgun, fimmtudaginn 22. febrúar klukkan 17:30, hafa Íbúasamtök Kjalarness í samvinnu við Hverfisráð Kjalarness, bæjar- og sveitarstjórnir Kjósarhrepps, Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshepps, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar, boðað til fundar um uppbyggingu  á Vesturlandsvegi um Kjalarnes til að bæta öryggi vegfarenda. Fundinn verður haldinn í Fólkvangi á Kjalarnesi. Um er að ræða opinn fund íbúa svæðisins og þangað…Lesa meira

true

Óveður stendur nú sem hæst

Bálhvasst er nú víða á Vesturlandi og ekkert ferðaveður. Skólahald féll í nokkrum skólum niður af þessum sökum í morgun og í öðrum skólum voru foreldrar látnir meta hvort þeir sendu börn sín í skóla. Vegir eru víða lokaðir, þar á meðal um Kjalarnes, við Hafnarfjall, Brattabrekka, Holtavörðuheiði og Fróðárheiði. Almennt er þó ekkert ferðaveður…Lesa meira

true

Verið er að innrétta nýjan veitingasal í Bjarnarhöfn

Bærinn Bjarnarhöfn í Helgafellssveit á Snæfellsnesi er mörgum kunnur en þar hefur um árabil verið rekin hákarlaverkun ásamt hákarlasafni. Það var Hildibrandur Bjarnason sem var frumkvöðullinn að þessari uppbyggingu, en hann lést 16. nóvember á síðasta ári eftir erfið veikindi, en eftir standa eftirlifandi eiginkona hans og tveir synir sem sinna rekstri ferðaþjónustunnar. Undanfarna mánuði…Lesa meira

true

Draumurinn að geta verið veiðivörður á sumrin

„Að geta rölt út og fengið sér sæti uppi á hól og hugsað; „þetta er mín skrifstofa í dag,“ er nákvæmlega það sem ég vil geta gert alla góðviðrisdaga ársins,“ segir Magnús Fjeldsted í Borgarnesi í samtali við blaðamann. Magnús hafði unnið sem ráðgjafi í sex ár hjá Arion banka í Borgarnesi þegar hann ákvað…Lesa meira

true

Allir bæjarfulltrúar draga sig í hlé

Útlit er fyrir að miklar breytingar verði á skipan bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar að komandi sveitarstjórnarkosningum afloknum. Allir bæjarfulltrúarinir sjö sem kosnir voru sem aðalmenn í bæjarstjórn fyrir fjórum árum síðan ætla að draga sig í hlé. H-listi var sigurvegari í kosningunum fyrir fjórum árum og hlaut fjóra menn kjörna; Hafdísi Bjarnadóttur, Sigurð Pál Jónsson, Katrínu Gísladóttur…Lesa meira

true

Landssamband veiðifélaga krefst stjórnsýsluúttektar á MAST

Landssamband veiðifélaga hefur skrifað Kristjáni Þór Júlíussyni ráðherra bréf þar sem þess er krafist að fram fari stjórnsýsluúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með sjókvíaeldi á laxi. Í bréfinu er vísað til þess að í fjölmiðlum hefur verið greint frá því að í óveðri að undanförnu hafi búnaður fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax orðið fyrir skemmdum og sjókví hafi laskast…Lesa meira

true

Tvöfalt fleiri umsóknir en hreindýr

Næstkomandi laugardag klukkan 14.00 verða dregin út hreindýraveiðileyfi í beinni útsendingu á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Alls bárust 3.176 umsóknir um að skjóta 1450 dýr á þessu ári; 389 tarfa og 1.061 kú. Þar af skulu 40 kýr veiddar í nóvember. Niðurstöður verða sendar með tölvupósti á umsækjendur eftir helgi.Lesa meira