Fréttir

true

Afgreiða fjölda heimila á Akranesi með öflugri nettengingar

Á annan tug starfsmanna Ljósleiðarans verður á ferðinni á Akranesi í dag og næstu daga. Verkefni þeirra er að koma bæjarbúum á „Eitt gíg“ ljósleiðaratengingar. Bílar merktir fyrirtækinu verða væntanlega áberandi því ekki færri en 14 slíkir verða á ferðinni í bæjarfélaginu þar til þessari törn tenginga lýkur. Að sögn Vals Heiðars Sævarssonar, markaðsstjóra Gagnaveitunnar,…Lesa meira

true

Tjaldur tók niðri í Rifshöfn

Línubáturinn Tjaldur SH tók niðri í Rifshöfn í gærkvöldi þegar báturinn var á leið til veiða. Björgunarskipið Björg kom taug yfir í skipið og reyndi að ná Tjaldi af strandstað en gekk það erfiðlega. Til viðbótar var fengin stór og öflug hjólaskófla úr landi til að toga í bátinn. Með sameiginlegu átaki og vélarafli Tjalds…Lesa meira

true

Það er einfaldlega bullandi vertíð

Mjög góð aflabrögð hafa verið á miðunum við Snæfellsnes að undanförnu og netabátar sumir tvílandað og línubátar hafa verið að koma að landi með fullfermi. „Svo þetta er einfaldlega bullandi vertíð núna,“ segir Pétur Bogason hafnarvörður í Ólafsvík í samtali við Skessuhorn. Hann nefnir sem dæmi að netabáturinn Saxhamar hafi komið með yfir 200 tonn…Lesa meira

true

Sturla segir skilið við stjórnmálin

Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, ætlar ekki að gefa kost á sér til framboðs í sveitarstjórnarkosningunum á vori komanda. Þar með segir hann skilið við stjórnmálin eftir 44 ár á þeim vettvangi, sem bæjarstjóri, þingmaður, ráðherra og forseti Alþingis. Sturla varð bæjarstjóri í Stykkishólmi árið 1974 og gegndi því starfi til ársins 1991 þegar hann…Lesa meira

true

Fréttamaður RUV þarf stöðugt að skerpa gestsaugað

Flestir Vestlendingar ættu að vera farnir að kannast við Höllu Ólafsdóttur, fréttaritara RÚV fyrir Vesturland og Vestfirði. Það sem sumir hafa þó ekki gert sér grein fyrir er að hún hefur einnig gert efni fyrir Landann, skemmtilegt og fræðandi efni fyrir útvarp og heimildamyndir. Blaðamaður Skessuhorns bjallaði í Höllu á Ísafirði þegar hún var nýkomin…Lesa meira

true

Íslandsklukkan segir blindum og sjónskertum hvað tímanum líður

Íslandsklukkan er hugarsmíði Björns Ágústs Magnússonar frá Eystri-Leirárgörðum í Hvalfjarðarsveit. Eins og nafnið gefur til kynna er um klukku að ræða, en enga venjulega klukku þó. Hún sýnir ekki aðeins hvað klukkan er, heldur segir hún það einnig. Er henni ætlað að gera blindum og sjónskertum kleift að fylgjast með tímanum með auðveldum hætti. Björn…Lesa meira

true

ASÍ telur forsendur kjarasamninga brostnar

„Forsendur kjarasamninga eru brostnar,“ að mati miðstjórnar Alþýðusambands Íslands. Samkvæmt ákvæði í núgildandi samningum koma þeir því til endurskoðunar fyrir lok þessa mánaðar. „Það er mat ASÍ, að óbreyttu, að forsendur um að launastefna kjarasamninganna hafi verið stefnumarkandi hafi ekki gengið eftir. Því er heimild til uppsagnar þeirra fyrir lok febrúar enn í gildi.  Vegna…Lesa meira

true

Fækkun starfa og lækkað starfshlutfall

Síðastliðinn fimmtudag var þremur starfsmönnum Sýslumannsins á Vesturlandi sagt upp störfum og þremur til viðbótar boðið lægra starfshlutfall. Sýslumaðurinn á Vesturlandi er með aðalskrifstofu í Stykkishólmi, sýsluskrifstofur í Borgarnesi og Akranesi, útibú í Búðardal og samning við Snæfellsbæ um þjónustu sýslumanns á bæjarskrifstofunm þar. Breytingar á starfsmannahaldi ná til allra skrifstofa og útibúa sýslumannsins á…Lesa meira

true

Ný heitavatnslögn í pípunum

Veitur ohf., dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, auglýsir í Skessuhorni í dag eftir tilboðum í endurnýjun hitaveitulagnarinnar sem liggur frá Kjalardal norðan við Akrafjall og til Akraness. Tilboð í verkið verða opnuð 1. mars nk. klukkan 11. Útboðsgögn er hægt að panta á vefsíðunni: https://or.is/utbodLesa meira