Fréttir

true

Mávur frá Mávahlíð er lambafaðir ársins

Opinn fagráðsfundur í sauðfjárrækt var haldinn í Bændahöllinni fyrir skemmstu. Þar voru meðal annars veitt verðlaun til ræktenda þeirra sæðingastöðvahrúta sem þykja hafa skarað fram úr. Sæðingastöðvarnar gefa verðlaunin en það er í höndum faghóps Rannsóknarmiðstöðvar Landbúnaðarins að velja hrútana út frá árangri þeirra. Hrúturinn Mávur 15-990 frá Mávahlíð á Snæfellsnesi valinn besti lambafaðirinn árið…Lesa meira

true

Vegfarendur eiga að tilkynna um óhöpp sem þeir verða vitni að

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi kom að umferðaróhappi á mánudag. Þar hafði bíll farið út af á veginum við Hafnarfjall og var ökumaður heppinn að velta ekki bílnum. Ökumaður var erlendur ferðamaður, einn á ferð. Lögregluþjónninn veitti því athygli að margir óku framhjá vettvanginum. Hann segir töluvert um að tilkynningar um óhöpp berist lögreglu seint.…Lesa meira

true

Stíga vistvæn skref í endurvinnslu frauðplastkassa

HB Grandi, dótturfélag þess Norðanfiskur, Íslenska gámafélagið og Samskip undirrituðu á fimmtudag umhverfisyfirlýsingu sem snýr að endurvinnslu og útflutningi á frauðplasti. Verkefnið byggir á frauðpressuvél sem staðsett er í Kistunni, sorpflokkunarstöð HB Granda á Akranesi. Með vélinni má minnka rúmtak fiskikassanna um 95%. Með því að pressa frauðplastið gefst tækifæri til að flytja það til…Lesa meira

true

Kynningarfundur í Lyngbrekku um landbúnað og náttúruvernd

Í byrjun desember á liðnu ári var undirrituð samstarfsyfirlýsing á milli Bændasamtaka Íslands og umhverfis- og auðlindaráðuneytis þess efnis að könnuð verði tækifæri í samþættingu landbúnaðar og náttúrverndar. Verkefnið er fjármagnað af umhverfisráðuneytinu sem hefur gert samning við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. um að vinna verkefnið. Markmið og tilgangur verkefnisins er að kanna möguleika á samþættingu…Lesa meira

true

Tillögur til að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að eignast húsnæði

Starfshópur undir forystu Frosta Sigurjónssonar, sem félagsmálaráðherra skipaði í lok síðasta árs, hefur skilað tillögum sínum. Lagðar eru til fjórtán tillögur og breytingar á þeim úrræðum sem fyrir eru til að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Tillögur hópsins voru kynntar í húsakynnum Íbúðalánasjóðs í dag. Þær miða m.a. að því…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Þjóðgarðsmiðstöð hefjast í dag

Í dag hefst með formlegum hætti jarðvegsvinna við nýja Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra er af því tilefni væntanlegur á staðinn og er íbúum boðið að koma og fagna á þessum tímamótum klukkan 14:45, en boðið verður upp á kaffi og kleinur í Sjóminjasafninu. Þrjú ár er síðan fyrsta skóflustunga var tekin að…Lesa meira

true

Skaginn 3X og Frost semja um stórt verkefni í Rússlandi

Tæknifyrirtækin Skaginn 3X og Kælismiðjan Frost hafa landað milljarðasamningi um hönnun, uppsetningu og innleiðingu á vinnslu- og kælibúnaði í risavaxinn frysti- og vinnslutogara sem er í smíðum fyrir rússneska útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Collective Farm Fishery. Framleiðslugeta togarans verður allt að 450 tonn á dag og frystilestarnar rúma 5.100 tonn. Heildarlausnir Frosts samanstanda af frystikerfi, sem…Lesa meira

true

Hálfur milljarður í rekstrarafgang hjá Borgarbyggð

Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2018 var lagður fram á fundi byggðarráðs í gær og verður tekinn til fyrri umræðu í sveitarstjórn 11. apríl. Í tilkynningu frá byggðarráði kemur fram að niðurstaða ársreiknings sýni að fjárhagur Borgarbyggðar standi traustum fótum. Rekstrarniðurstaða ársins fyrir samstæðu A og B hluta er jákvæð um 502 milljónir króna sem er…Lesa meira

true

Alvarleg villa í útreikningi Skólavogarinnar um meðallaun

Bagaleg mistök sem nauðsynlegt er að leiðrétta – segir sveitarstjóri Nokkur umræða hefur skapast í Borgarbyggð um meintan stórmun á meðallaunakostnaði í grunnskólum í sveitarfélaginu. Meðal annars minntist Guðsteinn Einarsson á málið í aðsendri grein í Skessuhorni í þessari viku. Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri vill koma á framfæri leiðréttingu vegna málsins og tekur fram að…Lesa meira

true

Úrslit á Borðeyrarmóti

Síðastliðinn laugardag fór hið árlega Borðeyrarmót í bridds fram með þátttöku 19 para. Komu spilarar allt frá Reykjavík, Snæfellsnesi, Borgarfirði, Ströndum og af Norðurlandi. Leikar fóru þannig að Borgfirðingar héldu heim með bikarinn. Jón Eyjólfsson formaður Bridgefélags Borgarfjarðar og makker hans Baldur Björnsson voru í góðum gír og lönduðu öruggum 58% sigri. Norðanmenn voru svo…Lesa meira