Fréttir

true

Tap í botnslagnum

Skallagrímur og Breiðablik mættust í botnslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Kópavogi. Blikar höfðu undirtökin meira og minna allan leikinn, þó Skallagrímskonur væru aldrei langt undan. Fór svo að lokum að heimakonur höfðu betur, 81-72. Breiðablik byrjaði leikinn betur en Skallagrímskonur komust yfir um miðjan fyrsta leikhluta. Þá tóku heimakonur…Lesa meira

true

Skutlan sem gjörbreytti lífi hans

Gunnlaugur Lárusson, húsasmíðameistari í Stykkishólmi, festi á dögunum kaup á nýjum fararskjóta. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að fararskjótinn verður að teljast óvenjulegur. Um er að ræða yfirbyggða rafskutlu, þá einu í Stykkishólmi og líklega þó víðar væri leitað. Yfirbyggðar rafskutlur þekkjast víða erlendis en hafa til þessa…Lesa meira

true

Dramatík suður með sjó

Snæfell heimsótti Keflavík í stórleik 23. umferðar Domino‘s deildar kvenna í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda en Snæfell var þó feti framar nánast allan tímann. En Keflvíkingar fylgdu alltaf fast á hæla Hólmara og náðu undir lokin að stela sigrinum. Lokatölur voru 79-77 fyrir Keflavík. Snæfellskonur höfðu heldur yfirhöndina í…Lesa meira

true

Leikrýni – Rafmögnuð Njála á Söguloftinu

„En allt breytist í þessu lífi.” Svo skrifaði Muggur í sögunni um Dimmalimm. Oft verður manni hugsað til þessa þegar maður verður í sífellu að endurmeta hlutina. Atburðir líðandi stundar knýja okkur til að opna augun fyrir alþjóðleika og fjölbreytni. Sjálflægnin hopar og aðrar þjóðir verða ekki lengur svo fjarlægar. Oft heyrum við af átökum…Lesa meira

true

Töluvert um hraðakstur og akstur án réttinda

Ökumaður var stöðvaður af lögreglu á Vesturlandsvegi á föstudag, grunaður um ölvun við akstur. Lögregla segir að íbúar í landshlutanum og vegfarendur séu duglegir að tilkynna ef þá grunar að einhver aki undir áhrifum áfengis eða fíkniefna, eða þyki aksturslag einkennilegt. Lögregla kannar slíkt og þá kemur í ljós hvort grunurinn reynist á rökum reistur.…Lesa meira

true

Vorið kemur hjólandi

Lögreglan á Vesturlandi var við skólaeftirlit við Grunnskólann í Stykkishólmi miðvikudaginn 27. febrúar. Fylgst var með umferð við skólann kl. 8:00 að morgni. Í dagbók lögreglu kemur fram að margir hafi verið hjólandi eða gangandi, enda vorið að skella á. Lögregla telur ástæðu til að hvetja ökumenn til að vera vakandi fyrir þessum vorboða, því…Lesa meira

true

Skemmtun og boðskapur í uppfærslu Rympu í Þinghamri

Það var líf og fjör á leiksviðinu í félagsheimilinu Þinghamri í Stafholtstungum síðastliðinn sunnudag þegar Leikdeild Umf. Stafholtstungna frumsýndi barna- og fjölskylduverkið Rympa á ruslahaugnum. Verkið er eftir Herdísi Egilsdóttur kennara og leikritaskáld og var það fyrst sýnt í Þjóðleikhúsinu 1980. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson sem nokkrum sinnum áður hefur leikstýrt Tungnamönnum við góðan orðstír.…Lesa meira

true

Samið við fyrirliðann og fjóra aðra leikmenn

Það hefur verið töluvert um að vera í leikmannamálum Víkings Ó. undanfarið, en nýverið samdi Ólafsvíkurliðið við fjóra leikmenn. Ber þar fyrst að nefna að fyrirliðinn Emir Dokara hefur gert nýjan samning við liðið út keppnistímabilið 2019. Emir leikur í vörninni og hefur verið á mála hjá Víkingi Ó. frá árinu 2011. Fyrirliðinn er jafnframt…Lesa meira

true

Tími til útivistar þegar sjónvarp og samskiptamiðlar spila ekki aðalhlutverk

„Útivistin hefur alltaf fylgt mér. Þegar ég er úti í náttúrunni og sérstaklega uppi á fjöllum er allt eitthvað svo einfalt og skýrt og það heillar mig,“ segir Skagakonan Belinda Eir Engilbertsdóttir þegar Skessuhorn heimsótti hana á í byrjun vikunnar. Við settumst niður og ræddum um útivistina, vinnuna, áhugamálin og lífið en Belinda og eiginmaður…Lesa meira

true

Útilífsnámskeið haldin á Vesturlandi næstu daga

Þær Anna Lind Björnsdóttir og Pálína Ósk Hraundal ætla að bjóða upp á útilífsnámskeið fyrir leikskólakennara og foreldra á Vesturlandi á næstu dögum. „Útivera er mikilvæg og með námskeiðinu viljum við hvetja kennara til meiri útiveru og útikennslu í daglegu starfi. Okkar áherslur eru einnig að hvetja foreldra og börn til meiri útiveru í daglegu…Lesa meira