Fréttir

true

Færði Krabbameinsfélagi Akraness peningagjöf

Soffía G. Þórðardóttir ljósmóðir fagnaði nýverið 70 ára afmæli sínu. Á afmælisdaginn afþakkaði hún gjafir en hafði þess í stað söfnunarkassa og tók við frjálsum framlögum. Alls söfnuðust í kassann 208.500 kr., sem Soffía ákvað að láta renna til Krabbameinsfélags Akraness og heiðra þannig minningu föður síns, Þórðar Jónssonar og systur sinnar, Agnesar Sigrúnar Þórðardóttur,…Lesa meira

true

Eldri borgarar í Grundarfirði á fullu í ræktinni

Félag eldri borgara í Grundarfirði og Grundarfjarðarbær hafa komið af stað verkefni um heilsueflingu fyrir íbúa sem eru 60 ára og eldri eða búa við örorku. Verkefnið er í samvinnu við Grundarfjarðardeild Rauða Kross Íslands og með aðkomu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og fleiri aðila. Boðið er upp á tíma í líkamsræktinni tvisvar í viku og svo…Lesa meira

true

Íbúaþing framundan í Dölum

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að boðað verði til íbúaþings í Tjarnarlundi í Saurbæ sunnudaginn 17. mars næstkomandi. Skipulag þingsins verður með þeim hætti að allir geti tekið þátt og sjónarmið allra komi fram. Boðið verður upp á léttan hádegisverð á þinginu. Ítarleg dagskrá og tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur.Lesa meira

true

Borgnesingar fallnir

Skallagrímur heimsótti Val í fallbaráttuslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að eiga áfram möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Valsmenn gátu hins vegar með sigri fellt Skallagrím og þar með tryggt sér áframhaldandi veru í Domino‘s deildinni. Eftir nokkuð jafnan og spennandi fyrri…Lesa meira

true

Töluverðar breytingar á golfreglum

Nýjar og breyttar golfreglur tóku gildi um áramótin síðustu. Breytingarnar eru töluvert margar, eða samtals 45 talsins og miða að því að nútímavæða reglur leiksins. Golfklúbburinn Oddur í Garðabæ hefur tekið saman þær tuttugu reglubreytingar sem helst hafa áhrif á leik kylfinga. Við þá samantekt er stuðst hér. Tuttugu helstu breytingarnar eru eftirfarandi: Leitartími er…Lesa meira

true

Jósefina Morell undirbýr sýningu í Safnahúsi

Laugardaginn 16. mars næstkomandi mun listakonan Josefina Morell opna listsýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar mun hún sýna ýmsar gerðir list- og nytjalistar sem hún vinnur að um þessar mundir. Þema sýningarinnar verður endurnýting og í raun nýtni og þar mun gefa að líta áhugaverð verk. Jósefina hefur getið sér gott orð fyrir listsköpun…Lesa meira

true

Kjötiðnaðarmaður sem söðlaði um og fór í matsveinanám

Ómar Bjarki Hauksson er matráður í Brákarhlíð í Borgarnesi. Hann var býsna brattur síðastliðinn föstudagsmorgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit við í eldhúsinu hjá honum. Um síðustu áramót voru fimm ár frá því Ómar tók til starfa sem matráður í Brákarhlíð en áður hafði hann lengst af unnið við kjötiðn. Hann er kjötiðnaðarmeistari að mennt og…Lesa meira

true

Kynningarfundir um verkefnið GróLind framundan

Landgræðslan fer af stað með fundarröð um Vesturland eftir helgi. Um er að ræða kynningar- og samráðsfundi um verkefnið GróLind. Markmið verkefnisins er að skila með reglubundnum hætti heildarmati á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins og gera grein fyrir breytingum þar á, sem og að þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu þessara auðlinda. „Íslensk þurrlendisvistkerfi veita fjölbreytta…Lesa meira

true

Kvenfélagið styrkir sjúkraþjálfun

Kvenfélagið Gleym mér ei í Grundarfirði færði á dögunum Heilsugæslustöð Grundarfjarðar ný áhöld til notkunar við sjúkraþjálfunaraðstöðu stöðvarinnar. Þarna var nýtt hlaupabretti, nýtt hlaupahjól og nýr æfingabolti. Það voru þau Agnes Sif Eyþórsdóttir og Mohan Angamuthu sjúkraþjálfari sem veittu gjöfunum viðtöku.Lesa meira

true

Fjölmennur fundur með landbúnaðarráðherra

Um eitt hundrað manns sóttu fund Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á Hótel Hamri á mánudagskvöld. Tilefni fundarins var frumvarp sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda og varðar m.a. innflutning á ófrystu kjöti. Bændur alls staðar að úr landshlutanum lögðu leið sína á fundinn, frá Hvalfirði norður í Dali og alls staðar þaðan…Lesa meira