Fréttir

true

Frá aðalfundi Kúabændafélagsins Baulu

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu á Vesturlandi var haldinn í Borgarnesi í gær. Á dagskrá voru almenn aðalfundarstörf auk erinda frá gestum. Gestir voru Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda og Baldur Samúelsson ráðunautur hjá RML, sem jafnframt veitti verðlaun fyrir góðan árangur í ræktun og nyt kúa á starfssvæðinu. Að sögn Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur formanns Kúbændafélagsins Baulu…Lesa meira

true

Hafa opnað náms- og stuðningsver í FVA

Nýtt náms- og stuðningsver var nýverið opnað í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Námsverið er hluti af verkefni sem styrkt var af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu í þeim tilgangi að sporna við brotthvarfi úr námi. Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við skólann, á hugmyndina að námsverinu og hefur hún séð um að koma því á laggirnar.…Lesa meira

true

Trúboðar vildu hitta að máli vantrúaða Borgarfirðinga

Síðastliðinn fimmtudag var Lögreglunni á Vesturlandi tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í Borgarfirði. Þar væru menn á ferð sem leituðu að fólki sem talaði pólsku eða ensku. Þótti íbúum það undarlegt og gerðu lögreglu viðvart. Lögregla kannaði málið snarlega og hitti fyrir umrædda menn. Kom þá á daginn að þar voru á ferðinni Vottar Jehóva, sem…Lesa meira

true

Fagaðilar í byggingariðnaði átelja harðlega vinnubrögð við útboð

„Fjölmennur fundur fagaðila í byggingariðnaði, sem í eru framleiðendur, starfsmenn og áhugamenn íslensks handverks og framleiðslu, fordæmir harðlega óforskömmuð vinnubrögð verkalýðshreyfingarinnar og þeirra aðila sem ganga freklega framhjá innlendri framleiðslu við innflutning á fullbúnum húsum, innréttingum og húsgögnum hingað til lands.“ Þannig hljóðar upphaf harðorðrar tilkynningar sem fagaðilar í íslenskum byggingariðnaði samþykktu á fjölmennum fundi…Lesa meira

true

Valdeflandi fræðsla gegn misnotkun á lyfjum og fíkniefnum

Aðstandendur Minningarsjóðs Einars Darra hafa nú farið af stað með uppfræðsluerindi fyrir nemendur í 7.-10. bekk í grunnskólum landsins og fyrir foreldra og kennara grunnskólabarna. „Við viljum hafa þetta valdeflandi fræðslu þar sem við gefum foreldrum, kennurum og krökkum verkfæri til að bregðast við með upplýstum hætti þegar þau eru komin í aðstæður þar sem…Lesa meira

true

Formannsskipti að verða hjá Bændasamtökum Íslands

Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson hefur óskað eftir því að stíga til hliðar sem formaður Bændasamtaka Íslands. Sindri hefur gegnt starfinu frá árinu 2013, en tekur í apríl við nýju starfi svæðisstjóra Arion banka á Vesturlandi með aðsetur í Borgarnesi. Í ljósi þess mun hann láta af öllum trúnaðarstörfum fyrir samtök bænda. Frá þessu er greint í…Lesa meira

true

Fjöldi svikasímtala tilkynntur til lögreglu

Lögreglunni á Vesturlandi bárust töluvert margar tilkynningar vegna svikasímtala erlendis frá í vikunni sem leið. Stundum getur litið út fyrir að símanúmerið sem hringt er úr sé íslenskt, en svo kemur annað á daginn. Lögregla hvetur fólk til að svara ekki grunsamlegum númerum og ef það svarar að gefa ekki upp neinar upplýsingar. Ef einhverjir…Lesa meira

true

Línubátum hefur fjölgað sem landa í Snæfellsbæ

Þrátt fyrir að leiðindaveður að undanförnu hefur verið nóg að gera í höfnum Snæfellsbæjar. Í morgun kom línubáturinn Páll Jónsson GK inn til löndunar í Ólafsvík. Starfsmenn Fiskmarkaðar Snæfellsbæjar sáu um löndunina. Að sögn Andra Steins Benediktssonar framkvæmdastjóra er aflinn um 73 tonn og verður honum öllum ekið til Grindarvíkur til vinnslu hjá Vísi ehf.…Lesa meira

true

Sunnlenskir bændur fjölmenntu á fund vegna innflutnings landbúnaðarvara

Um 250 manns sóttu opinn fund sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hélt í gærkvöldi í félagsheimilinu Þingborg á Suðurlandi. Tilefni fundarins var frumvarp sem ráðherrann hefur lagt fram og birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda varðandi innflutning á m.a. ófrystu kjöti. Með frumvarpinu telur ráðherra sig vera að bregðast við dómum Hæstaréttar Íslands…Lesa meira

true

Dreifbýlið í Grundarfirði tengt ljósleiðara

Íbúar Útsveitarinnar í Grundarfjarðarbæ geta nú tengst ljósleiðaranum. Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að ófyrirséðar tafir hafi orðið í desember og janúar á blæstri síðasta hluta ljósleiðaralagnar. Ástæðan mun vera sú að nýlegt rör í eigu Mílu laskaðist svo þurfti að gera við það. Tenging komst á í lok janúarmánaðar og því geta Útsveitungar tengst…Lesa meira