
Erling Garðar Jónasson lést á Landspítalanum í Fossvogi 30. ágúst síðastliðinn. Hann fæddist í Reykjavík 24. júní 1935. Erling Garðar var sonur hjónanna Jónasar Sveinssonar framkvæmdastjóra Dvergs í Hafnarfirði og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður. Hann ólst upp í Hafnarfirði í sex systkina hópi en kvæntist Jóhönnu Guðnadóttur, f. 1937, árið 1955 og áttu þau fimm börn.…Lesa meira








