Fréttir

true

Dansbylting í hádeginu í dag í Borgarnesi og Rifi

„Milljarður rís 2017“ er yfirskrift dansgjörnings sem verður í Hjálmakletti í Borgarnesi og Frystiklefanum í Rifi á Snæfellsnesi í dag, föstudaginn 17. febrúar, kl. 12-13. „Ofbeldi gegn konum er vandamál um allan heim. Við tökum því afstöðu gegn ofbeldinu, mætum og dönsum,“ segir í fréttatilkynningu þar sem allir eru hvattir til að mæta. Í ár…Lesa meira

true

Sláandi kynjahalli í hinum ýmsu iðngreinum

Margar iðn- og verkgreinar hér á landi eru afar karllægustu og skortur er auk þess á fagmenntuðu fólki í ýmsum þeirra. Heildarfjöldi karlmanna sem lokið hafa sveinsprófi í löggildri iðngrein á Íslandi er 32.641. Heildarfjöldi kvenna er 5.151, eða innan við 16%. Nú hefur Tækniskólinn, í samstarfi við alla iðn- og verkmenntaskóla á landinu, ákveðið…Lesa meira

true

Sjö atvinnukylfingar fá styrk úr afrekssjóði

Nýverið var úthlutað úr Forskoti – afrekssjóði kylfinga og fá sjö atvinnukylfingar styrk úr sjóðnum að þessu sinni. Sjóðurinn hefur frá upphafi haft það að markmiði að styðja við þá kylfinga, atvinnumenn sem og áhugamenn, sem stefna á að komast í fremstu röð í heiminum í golfíþróttinni. Kylfingarnir sem nú hljóta stuðning eru Ólafía Þórunn…Lesa meira

true

Næst verður keppt í slaktaumatölti í Vesturlandsdeildinni

Annað mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum fer fram í Faxaborg í Borgarnesi föstudagskvöldið 17. febrúar og hefst kl. 19.00. Keppnisgrein kvöldsins er slaktaumatölt en þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í þeirri grein í deildinni. Siguroddur Pétursson úr liði Bergs/Hrísdals hafði sigur í fjórgangi á fyrsta móti vetrarins og leiðir því einstaklingskeppnina sem stendur.…Lesa meira

true

Sjálfboðaliðar mega ekki ganga í almenn störf

Talsverð umræða hefur að undanförnu verið í fjölmiðlum um launakjör starfsfólks í sveitum, eða svokallaðra sjálfboðaliða sem ráða sig til vinnu á sveitabæjum án þess að fá greidd laun. Þetta er umdeilt enda vissulega verið dæmi um að brotið hafi verið alvarlega á réttindum og starfskjörum slíkra sjálfboðaliða, eða vinnufólks. Nú hafa fulltrúar Bændasamtaka Íslands…Lesa meira

true

Snæfell lagði nýkrýnda bikarmeistara

Keppni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik hófst á ný eftir bikarviku í gærkvöldi. Snæfell mætti nýkrýndum bikarmeisturum Keflavíkur suður með sjó. Liðin hafa mæst tvisvar áður í vetur og í bæði skiptin hefur Snæfell haft betur. Engin breyting varð á því í gærkvöldi því Snæfell hafði sigur eftir nokkuð kaflaskiptan leik, 57-62. Upphafsleikhlutinn var…Lesa meira

true

Umhverfisvaktin við Hvalfjörð ályktar um mengun og stóriðju

Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð var haldinn í Garðakaffi á Akranesi 12. febrúar síðastliðinn. Á fundinum voru samþykktar fimm ályktanir um hin ýmsu mál sem öll tengjast stóriðju á Grundartanga og mengun vegna hennar. Meðal annars var skorað á umhverfisráðherra að endurskoða það fyrirkomulag að Umhverfisstofnun framselji ábyrgð og framkvæmd umhverfisvöktunar til mengandi iðjuvera á Grundartanga.…Lesa meira

true

Bikarhrollur í Skallagrímsliðinu

Í gærkvöldi hófst keppni í Domino‘s deild kvenna að nýju eftir hlé vegna bikarkeppninnar í síðustu viku. Í Borgarnesi mættust Skallagrímur og Valur. Smá bikarhrollur var í Skallagrímsliðinu eftir tap í úrslitaleiknum síðasta laugardag. Valskonur voru heldur sterkari allan leikinn og höfðu að lokum sigur, 63-71. Valur byrjaði betur og var með undirtökin í upphafi…Lesa meira

true

Sjómannadeilan í hnút vegna skatta af dagpeningum

Í gærkvöldi lauk fundi hjá ríkissáttasemjara vegna kjaradeilu sjómanna við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns lágu eftir fundinn fyrir drög að nýjum kjarasamningi. Það sem útaf stóð á þeim tímapunkti var atriði sem beint er til stjórnvalda um að fá vilyrði frá sjávarútvegsráðherra fyrir því að stjórnvöld myndu liðka fyrir því að dagpeningar…Lesa meira

true

Fræðsluerindi í næstu viku um ljósmyndun

Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi, er sjö ára. Félagið stendur fyrir viðburði í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi, fimmtudaginn 23. febrúar nk. kl. 20:00. Hinn kunni Mike Browne heldur fræðsluerindi sem ber nafnið „Cameras don’t take pictures.“ Þar fjallar hann um ljósmyndun á sinn skemmtilega máta. Erindið er öllum opið og er aðgangur ókeypis í…Lesa meira