Fréttir

true

Til hamingju með daginn konur!

Konudagurinn er í dag. Dagurinn er ætíð sunnudagur í 18. viku vetrar þegar Þorrinn hefur kvatt og góan gengið í garð. Góan færir okkur einmitt birtu og inngang í vorið, líkt og konur gera reyndar allt árið. Konur; til hamingju með daginn og takk fyrir að vera til!Lesa meira

true

Tvöfaldur Vesturlandsslagur framundan í Borgarnesi

Nú um helgina er á dagskrá tveggja daga Vesturlandsorrusta í körfuknattleik í Borgarnesi. Skallagrímur og Snæfell mætast í Domino’s deildum karla og kvenna. Konurnar ríða á vaðið í dag, laugardaginn 18. febrúar, kl. 16:30 með stórleik umferðarinnar í Domino’s deild kvenna. Liðin mættust síðast í undanúrslitum bikarsins þar sem Skallagrímur hafði betur, eins og þekkt er. Snæfell á því…Lesa meira

true

Rúmlega 600 nýjar íbúðir

  Opinn kynningarfundur á skipulagslýsingum Sements- og Dalbrautarreits var haldinn á Akranesi að kvöldi síðasta fimmtudags. Fundurinn fór fram í sal Grundaskóla og var hann vel sóttur. Fundarstjóri var Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður starfshóps um Sementsreit. Efni fundarins var tvíþætt, í fyrsta lagi voru kynntar skipulagslýsingar fyrir Dalbrautarreitinn svokallaða og í öðru lagi fyrir…Lesa meira

true

Milljarður rís 2017

Í hádeginu í dag var dansað gegn ofbeldi víða um heim, meðal annars á ellefu stöðum á Íslandi. Átak þetta nefnist „Milljarður rís 2017“ og er dansgjörningur til að vekja umræðu gegn ofbeldi á konum sem er vandamál um allan heim. Hér á Vesturlandi var dansað í Frystiklefanum í Rifi og í Hjálmakletti í Borgarnesi.…Lesa meira

true

Brautskráð frá HÍ á morgun

Rúmlega 450 kandídatar taka við brautskráningarskírteini sínu í grunn- eða framhaldsnámi frá Háskóla Íslands á morgun, laugardaginn 18. febrúar. Þá fer febrúarbrautskráning skólans fram í Háskólabíói kl. 13. Athöfnin hefst með ávarpi Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, en í framhaldinu fer fram brautskráning nemenda úr 25 deildum af öllum fimm fræðasviðunum skólans, Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði,…Lesa meira

true

Fýluferð til Egilsstaða

Leikmenn ÍA lögðu land undir fót og mættu toppliði Hattar austur á Egilsstöðum í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Skagamenn gerðu enga frægðarför. Þeir voru fáliðaðir, aðeins sjö leikmenn tóku þátt í leiknum og máttu að lokum sætta sig við stórt tap. Höttur sigraði með 101 stigi gegn 66 stigum ÍA. Heimamenn byrjuðu…Lesa meira

true

Brynjar Snær valinn í U17 ára landslið karla

Þorlákur Árnason þjálfari U17 ára landsliðs karla í knattspyrnu hefur valið 18 manna hóp sem tekur þátt í æfingamóti í Skotlandi dagana 27. febrúar – 3. mars. Leikið verður gegn Skotlandi, Austurríki og Króatíu. Brynjar Snær Pálsson leikmaður Skallagríms í Borgarnesi var valinn í hópinn. „Óskar knattspyrnudeild Skallagríms honum innilega til hamingju með þann áfanga…Lesa meira

true

Bitlausir Borgnesingar

Skallagrímur mætti Keflavík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Keflavík. Skallagrímsmenn náðu sér aldrei nægilega vel á strik í leiknum og voru hálf bitlausir á löngum köflum. Eftir að heimamenn tóku forystuna náðu Borgnesingar aldrei að gera neina alvöru atlögu að forskotinu. Fór að lokum svo að Keflavík sigraði með…Lesa meira

true

Leiðir skildu í öðrum leikhluta

Snæfell mætti Tindastóli í Domino‘s deild karla í körfuknattleik þegar keppni hófst að nýju eftir hlé vegna bikarkeppninnar. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn framan af en um miðjan annan leikhluta skildu leiðir og Tindastóll sigraði að lokum mjög afgerandi, 59-104. Snæfellingar mættu ákveðnir til leiks og staðráðnir í að…Lesa meira

true

Þiggja styrki úr Fjarskiptasjóði

Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni var úthlutað úr Fjarskiptasjóði í byrjun febrúar. Þau sveitarfélög á starfssvæði Skessuhorns sem eiga kost á styrk til ljósleiðaravæðingar eru Akraneskaupstaður, Dalabyggð, Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær, Skorradalshreppur og Reykhólahreppur. Málið er þar með inni á borði kjörinna fulltrúa í þessum sveitarfélögum. Í nokkrum sveitarfélögum hefur styrkveiting úr Fjarskiptasjóði…Lesa meira