Fréttir

true

Lönduðu í annað sinn í Ólafsvík

Færeyska línuskipið Jákub B landaði í annað sinn á stuttum tíma í Ólafsvík síðastliðinn mánudag, að þessu sinni 35 tonnum af úrvals fiski sem fór beint á markað. Að sögn Óskars Melsted sölustjóra hjá Fiskmarkaði Íslands fór kílóið af þorskinum á 300 krónur og ýsan lagði sig á 305 krónur. Hann sagði að gott væri…Lesa meira

true

Steini Eyþórs er Borgnesingur ársins 2016

Á Borgarnesblótinu sem fram fór síðastliðinn laugardag, og haldið er af Körfuknattleiksdeild Skallagríms, var í fyrsta skipti útnefndur Borgnesingur ársins. Greinilegt var af viðbrögðum úr sal þegar valið var kynnt að það féll í frjóan jarðveg. Þegar Gunnlaugur Júlíusson sveitarstjóri kynnti niðurstöðuna var fagnað vel og lengi. Borgnesingur ársins 2016 er Þorsteinn Eyþórsson, eða Steini…Lesa meira

true

Úrslit úr fjórgangi á KB mótaröðinni

KB mótaröðin í hestaíþróttum hófst í Faxaborg í Borgarnesi síðastliðinn laugardag með keppni í fjórgangi. Það eru hestamannafélögin Skuggi og Faxi sem halda mótið. Í þremur efstu sætum í hverjum flokki urðu:   A úrslit barnaflokkur: Aníta Björk Björgvinsdóttir, Klöpp frá Skjólbrekku. 5,8 Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir, Hylling frá Minni-Borg. 5,20 Andrea Ína Jökulsdóttir, Eldur frá…Lesa meira

true

Komnir með Hjördísi HU til Rifs

Giftusamlegri björgun á línubátnum Hjördísi HU-16 er nú lokið. Báturinn var síðdegis í dag við það að sökkva, þegar hann var staddur á línuveiðum á Breiðafirði um sjö sjómílur norðvestan við Rif. Björgunarskipinu Björg var siglt til móts við Hjördísi og tók skipverjana tvo um borð. Þá fóru björgunarsveitarmenn um borð í bátinn og hentu…Lesa meira

true

Uppfærð frétt: Björgun stendur yfir á Breiðafirði

Björgunarskipið Björg frá Rifi er nú komið að bátnum Hjördísi HU 16 sem var við það að sökkva um sjö sjómílur norðvestan við Rif á Snæfellsnesi síðdegis í dag. Um borð í Hjördísi voru tveir skipverjar og eru þeir nú komnir um borði í Björgina heilir á húfi. Ágætt veður er á svæðinu. Búið er að…Lesa meira

true

Fjallað um súrnun hafsins á fyrirlestri í Stykkishólmi

Í kvöld klukkan 20 verður á Ráðhússloftinu Hafnargötu 3 í Stykkishólmi flutt áhugavert erindi í fyrirlestraröð Náttúrustofu Vesturlands. Þar mun Hrönn Egilsdóttir frá Háskóla Íslands fjalla um súrnun hafsins og þá ógn sem lífríkinu stafar af þessum manngerðu breytingum. Stiklað verður á stóru um stöðu þekkingar á áhrifum súrnunar hafsins á fiska, fæðuna þeirra og…Lesa meira

true

„Mér finnst bara gaman að vera lifandi og hafa nóg að gera“

Samúel Þorsteinsson er mörgum Vestlendingum vel kunnur. Hann bæði syngur, leikur og spilar á hljóðfæri og hefur komið fram á ófáum mannamótum víðsvegar um landshlutann á undanförnum árum. Þá kennir hann bæði leiklist og tónlist í báðum grunnskólunum á Akranesi. Samúel er Vestlendingur í húð og hár, alinn upp í Tungu í Svínadal en hefur…Lesa meira

true

Andlát: Ríkharður Jónsson heiðursborgari Akraness

Ríkharður Jónsson fyrrverandi knattspyrnukappi, málarameistari og heiðursborgari Akraness er látinn 87 ára að aldri. Ríkharður var fæddur á Reynisstað á Akranesi 12. nóvember 1929. Ríkharður var strax á unga aldri goðsögn í íslenskri knattspyrnu og að margra áliti var hann einn mesti „ambassador” fótboltans sem Ísland hefur átt fyrr og síðar. Hann hóf að leika…Lesa meira

true

Vöxtur í öllum flokkum verslunar nema fötum og skóm

Almennt fór velta í smásöluverslun í janúar vaxandi líkt og undanfarna mánuði að undanskilinni fata- og skóverslun. Í nýrri skýrslu Rannsóknamiðstöðvar verslunarinnar kemur fram að sala á skóm og fötum dróst nokkuð saman frá janúar í fyrra. Verðlag var lægra í öllum vöruflokkum sem mælingin nær til nema áfengi sem hækkaði um 0,5% frá janúar…Lesa meira

true

Íslendingar fá að veiða 196 þúsund tonn af loðnu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að loðnukvótinn á vertíðinni verði 299 þúsund tonn. Þar af koma rúmlega 196 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa og er þá búið að gera ráð fyrir veiðiheimildum nágrannaþjóða okkar, Færeyja, Grændlands og Noregs, vegna ýmissa samninga. Veiðar geta hafist þegar verkfall sjómanna verður leyst. Skip HB Granda fá…Lesa meira