Fréttir

true

Snæfellsbær styrkir verslun og þjónustu með jólagjöfum til starfsfólks

Snæfellsbær ætlar líkt og í fyrra að færa starfsfólki sínu gjafabréf í jólagjöf sem nýta má hjá verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu. Ákvörðunin er tekin í kjölfar góðra undirtekta bæði starfsmanna og fyrirtækja á síðasta ári. Með þessu vill sveitarfélagið gefa starfsfólki kost á að velja sér jólagjöf að eigin ósk og um leið styðja…Lesa meira

true

Leggur til að einkunnir verðir framvegis gefnar í tölustöfum

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að bráðabirgðaákvæði í aðalnámskrá grunnskóla. Ákvæðið útfærir fyrirhugaða notkun talnaeinkunna við brautskráningu úr 10. bekk á yfirstandandi skólaári í stað bókstafseinkunnanna A–D. „Markmið fyrirhugaðra breytinga á námsmati við lok grunnskóla er að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari og þannig stuðla að auknu jafnræði…Lesa meira

true

Erlend netverslun heldur áfram að aukast

Enn er ekkert lát á aukningu erlendrar netverslunar Íslendinga og stefnir í að verslun á síðustu þremur mánuðum ársins nemi tæpum 13 milljörðum króna. Samkvæmt nýbirtum tölum Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) keyptu Íslendingar fyrir 2,93 milljarða króna í erlendum netverslunum í ágúst, sem er 9,13% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á sumarmánuðunum, júní til ágúst,…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í Borgarnesi í kvöld – ÍA sækir Skallagrím heim

Það má búast við hörkuleik í Fjósinu í Borgarnesi í kvöld, föstudaginn 9. október, þegar heimamenn taka á móti Skagamönnum í 1. deild karla í körfuknattleik. Flautað verður til leiks klukkan 19.15 og eru bæði lið staðráðin í að næla sér í dýrmæt stig á fyrstu vikum tímabilsins. Skagamenn, undir stjórn Hjalta Þórs Vilhjálmssonar, hófu…Lesa meira

true

Friður á vinnumarkaði út næsta ár

Síðdegis í gær náðist samkomulag um að kjarasamningar verða áfram í gildi út árið 2027 þrátt fyrir að tólf mánaða verðbólga hafi verið hærri en forsendur samninganna gerðu ráð fyrir. Í byrjun vikunnar sömdu Efling, Starfsgreinasambandið og fleiri félög en í gær var komið að VR og öðrum sem áttu eftir ósamið. Áður en til…Lesa meira

true

Sjúkrabíllinn fyrstur á vettvang bílveltu

Líklega hefur einhvers konar met verið slegið á miðvikudaginn þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni, rétt austan við Breiðablik, Gestastofu Snæfellsness í Eyja- og Miklaholtshreppi, með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf og valt. Sjúkrabíll á vegum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands var á vesturleið með sjúkling og ók fram á vettvang rétt eftir að óhappið hafði…Lesa meira

true

Skagamenn hefja lokasprettinn gegn Íslandsmeisturunum

Aðeins þrjár umferðir eru eftir af Bestu deild karla í knattspyrnu og fram undan er spennandi lokasprettur hjá Skagamönnum, sem eiga enn möguleika á að tryggja sér sæti í Evrópukeppni á næsta ári. Eftir þriggja vikna landsleikjahlé verður keppni í efri hluta deildarinnar fram haldið á sunnudagskvöld þegar ÍA sækir Íslandsmeistara Víkings í Reykjavík heim.…Lesa meira

true

Unnur er nýjasta björgunarskip Landsbjargar

Það var hátíðleg stund á Patreksfirði síðastliðinn sunnudag þegar nýja björgunarskipið Unnur sigldi til hafnar og fjölmenni tók á móti því. Unnur er áttunda skipið í endurnýjun björgunarskipaflota Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Unnur hlaut nafn sitt til heiðurs Slysavarnadeildinni Unni á Patreksfirði. Við komuna gafst gestum tækifæri til að skoða bæði skipin og í kjölfarið var boðið…Lesa meira

true

Kynntu ljúffenga eldun á sauðakjöti

Hlédís Sveinsdóttir stóð fyrir áhugaverðum viðburði í Nýsköpunarsetrinu Breið á Akranesi í hádeginu í dag. Raunar var um matarboð að ræða þar sem starfsfólki á setrinu og fleiri gestum var boðið í mat, rammíslenskt sauðakjöt. Um var að ræða lokahnykk verkefnis sem Hlédís hefur unnið að og fjallar um framleiðslu og möguleika á markaðssetningu á…Lesa meira

true

Framkvæmdir við nýtt leiksvæði í Krosslandi að hefjast

Framkvæmdir við leiksvæðið í Krosslandi í Hvalfjarðarsveit hefjast á næstu dögum. Búið er að undirrita verksamning við Fagurverk ehf. um verkið en markmiðið er að skapa fjölbreytt og aðlaðandi útivistarsvæði við sjávarsíðuna sem nýtist fólki á öllum aldri. Við hönnun svæðisins var lögð áhersla á að nýta náttúrulega kosti þess, svo sem hæðarmismun og gróður,…Lesa meira