Fréttir

true

Vel heppnað PRS skotmót í Kolgrafafirði

Skotfélagið Skotgrund stóð um helgina fyrir Fossbúinn Challenge PRS Pro Match 2026 á æfingasvæði félagsins í Kolgrafafirði. Mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni Precision Rifle Series (PRS) og tóku 23 keppendur þátt, þar af fjórar konur, auk þess sem nokkrir keppendur komu erlendis frá. Í PRS keppni reyna þátttakendur með sér í fjölbreyttum skotþrautum þar…Lesa meira

true

Svínað fyrir forseta bæjarstjórnar

Nokkrar hænur búa í Flatahverfinu á Akranesi. Af og til fara þær á bæjarrölt í aðliggjandi hverfi. Á leið sinni þurfa þær að þvera umferðarþungar götur eins og Garðagrundina. Þær velja göngustíginn til þess en fara ekki endilega yfir á grænu ljósi. Á myndinni sést ein hænan en framan við bíl Ragnars Sæmundssonar forseta bæjarstjórnar…Lesa meira

true

Kári sótti sigur í Garðabæ

Föstudaginn 17. júlí var leikin þrettánda umferð 2. deildar karla á Íslandsmótinu í fótbolta. Á Samsungvellinum í Garðabæ tók KFG á móti Knattspyrnufélaginu Kára frá Akranesi.  Kára menn unnu dýrmætan sigur á sterkum útivelli en leiknum lauk 5:1 fyrir þeim. Leikurinn fór fjörlega af staða en Kári tók forystuna á 19. mínútu leiksins með marki…Lesa meira

true

Bjóða út gerð hringtorgs

Á morgun rennur út frestur til að gera Vegagerðinni tilboð í gerð nýs hringtorgs á Akrafjallsvegi, á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi á Akranesi um Lækjarskóga. „Um er ræða gerð hringtorgs, staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg, stígagerð að undirgöngum, lagningu vatns- og hitaveitulagna og annarra fjarskiptalagna og rafstrengja ásamt færslu núverandi háspennustrengja.…Lesa meira

true

Skallagrímur gerði út um leikinn í fyrri hálfleik

Föstudaginn 17. júlí áttust við Skallagrímur og Afríka í tíundu umferð 5. deildar karla A-riðils á Íslandsmótinu í fótbolta. Leikurinn fór fram á Þróttaravellinum í Laugardal. Skallagrímur byrjaði leikinn af krafti og leiddi með þremur mörkum gegn engu þegar liðin gengu til leikhlés. Skallagrímur fór hamförum í upphafi leiks en Guðjón Andri Gunnarsson skoraði tvennu…Lesa meira

true

Fimm fallegir laxar á fjórum dögum

„Við félagarnir ákváðum að taka tvö samliggjandi holl í Hörðudalsá þetta sumarið, en við erum búnir að veiða í Hörðudalsá í mörg ár og alltaf er það jafn gaman,“ segir Sævar Jónsson blikksmiður á Akranesi sem var að koma ur Hörðudalsa í Dölum. Veiðifélagar hans voru þeir Rúdólf Jósefsson, Hörður Jónsson og Kristján Baldvinsson. „Þegar…Lesa meira

true

Gæti þornað um eftir miðja vikuna

Veðurspár eru nokkuð samhljóða um að frá því síðdegis á fimmtudaginn og fram yfir næstu helgi gæti hangið þurrt á Vesturlandi. Eftir langvarandi úrkomutíð það sem af er júlímánuði munu því bændur geta glaðst, en margir hverjir eiga eftir stóran hluta heyskapar. Frá því síðdegis á fimmtudaginn og fram á mánudag verða norðlægar áttir ríkjandi…Lesa meira

true

Breikka hluta Snæfellsnesvegar

Framkvæmdir við breikkun og styrkingu Snæfellsnesvegar á um sex kílómetra löngum vegarkafla frá Brúarhrauni að Hraunsmúla, ganga vel. Ástand þessa hluta vegarins hefur lengi verið mjög bágborið og þar hafa orðið alvarleg slys. Að jafnaði aka 2.450 bílar um veginn á sólarhring að sumri, en vetrarumferð er um þúsund bílar. Það er Borgarverk sem vinnur…Lesa meira

true

Bjóða út breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi

Vegagerðin auglýsti í liðinni viku útboð vegna breikkunar Hringvegarins frá Vallá á Kjalarnesi og að Hvalfjarðarvegi sunnan við Hvalfjarðargöngin. Þetta er síðari áfangi breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes en nokkurra ára seinkun hefur orðið á verkinu. Upphaflega stóð til að breikkun hringvegarins um Kjalarnes, á öllum kaflanum milli Kollafjarðar og Hvalfjarðarganga, myndi ljúka árið 2023, samkvæmt…Lesa meira

true

Rifsþéla nemur land í Stykkishólmi

Róbert Arnar Stefánsson líffræðingur í Stykkishólmi greinir frá því á FB síðu sinni að ný, framandi og ágeng tegund hefur náð fótfestu í Stykkishólmi. Þetta er blaðvespan rifsþéla. „Lirfur hennar eru annáluð átvögl og elska stikkilsber og rifsber. Við erum með hvort tveggja í garðinum okkar og uppgötvuðum fyrir nokkrum dögum að þúsundir lirfa rifsþélunnar…Lesa meira