Fréttir

true

Rafmagnslaust í hluta Borgarfjarðar

Rafmagnslaust er frá Vatnshömrum í Andakíl að Reykholtsdalslínu. Fram kemur í tilkynningu frá Rarik að bilanaleit standi yfir. „Ef þú hefur upplýsingar sem gætu hjálpað okkur við bilanaleit hafðu á samband við stjórnstöð í síma 528 9000,“ segir í tilkynningunni.Lesa meira

true

Kirkjubraut lokað frá Stillholti að Háholti

Samkvæmt tilkynningu frá Akraneskaupstað í dag kemur fram að á föstudaginn 15. maí verður Kirkjubraut lokað frá umferðarljósunum við Stillholt niður að Háholti, vegna viðgerða á götunni. Reiknað er með að lokun vari fram á fimmtudag í næstu viku. Á meðan á lokun stendur, verður sett tvístefna á götuna sem ekið er til norðurs, samanber…Lesa meira

true

Reynir Ingibjartsson kjörinn heiðursfélagi Ferðafélagi Snæfellsness

Á aðalfundi Ferðafélags Snæfellsness, sem fór fram 7. maí á Hraunhálsi í Helgafellssveit, gerði nýkjörinn formaður félagsins, Guðmundur Rúnar Svansson í Dalsmynni, það að sínu fyrsta verki að leggja það til að Reynir Ingibjartsson yrði kjörinn heiðursfélagi, og var það samþykkt með dynjandi lófataki. Reynir hafði fyrr á fundinum gefið félaginu safn sitt af örnefnalýsingum,…Lesa meira

true

Björg í öðru útkalli á Breiðafirði í nótt

Rúmum átta tímum eftir að björgunarskipið Björg í Rifi lagðist að bryggju í Rifshöfn í gær, eftir að hafa dregið fiskiskipið Ólaf Bjarnason til Ólafsvíkur, var áhöfn skipsins boðuð út á ný. Aftur var fiskiskip af svipaðri stærð og hið fyrra í vandræðum á Breiðafirði, en aðskotahlutur hafði flækst í skrúfu skipsins. Útkallið barst um…Lesa meira

true

Nóg að gera við löggæslustörf

Í vikunni sem leið voru 77 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 910 ökumenn voru auk þess myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Fjórir ökumenn voru handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þrír voru stöðvaðir og kærðir fyrir að nota farsíma við akstur. Lögregla…Lesa meira

true

Landnámssetrið er 20 ára í dag

Í dag, miðvikudaginn 13. maí, eru 20 ár liðin frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi og af því tilefni bjóðum við íbúum Borgarbyggðar í afmæliskaffi og köku frá kl. 15:30-17:30. Einnig gefst gestum kostur á að skoða sýningarnar um Landnámið og Egils sögu sér að kostnaðarlausu. Aðal flaggskip Landnámssetursins eru sýningarnar um landnámið og Egilssögu en…Lesa meira

true

Fékk tógið í skrúfuna og var dreginn í land

Um hádegisbil í dag var björgunarskipið Björg í Rifi kallað út, en dragnótarbáturinn Ólafur Bjarnason SH hafði fengið tógið í skrúfuna. Skipið var statt nærri landi við Klettsvík austan við Ólafsvík og var því útkallið á forgangi. Vel gekk að koma tóg á milli skipanna og var komið til hafnar á fjórða tímanum síðdegis. Engan…Lesa meira

true

Þökkuðu minnihluta gott samstarf

Síðasti fundur núverandi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar var haldinn á fimmtudaginn. Af því tilefni kom forseti bæjarstjórnar með eftirfarandi bókun: „Bæjarfulltrúar D-listans vilja við lok þessa kjörtímabils færa bæjarfulltrúum J-listans einlægar þakkir fyrir afar gott samstarf á liðnum árum í bæjarstjórn. Meiri- og minnihluti hefur meðal annars unnið sameiginlega að fjárhagsáætlanagerð á kjörtímabilinu og lítill ágreiningur hefur…Lesa meira

true

Kynntu vilja til starfa í sveitarstjórn

Í sveitarfélaginu Dalabyggð verður viðhaft persónukjör í kjöri til sveitarstjórnar í ljósi þess að enginn framboðslisti var lagður fram. Alls hafa fjórir núverandi og fyrrverandi sveitarstjórnarfulltrúar skorast undan endurkjöri á laugardaginn. Síðastliðinn fimmtudag var haldinn kynningarfundur í Dalabúð þar sem íbúar gátu kynnt sig til leiks ef þeir hafa áhuga á að gefa kost á…Lesa meira