Guðmundur Rúnar og Reynir þegar sá síðarnefndi var gerður að heiðursfélaga Ferðafélags Snæfellsness. Ljósm. aðsend

Reynir Ingibjartsson kjörinn heiðursfélagi Ferðafélagi Snæfellsness

Á aðalfundi Ferðafélags Snæfellsness, sem fór fram 7. maí á Hraunhálsi í Helgafellssveit, gerði nýkjörinn formaður félagsins, Guðmundur Rúnar Svansson í Dalsmynni, það að sínu fyrsta verki að leggja það til að Reynir Ingibjartsson yrði kjörinn heiðursfélagi, og var það samþykkt með dynjandi lófataki. Reynir hafði fyrr á fundinum gefið félaginu safn sitt af örnefnalýsingum, og voru það fáeinir kassar af skjölum. Tæplega 30 manns sóttu aðalfundinn.